Samkvæmt upplýsingum sem félagið aflaði hjá stóru viðskiptabönkunum þremur veittu þeir samtals 1.159 stuðningslán til fyrirtækja sem urðu fyrir slíku tekjufalli. 248 lántakendur báðu í upphafi ársins um viðbótarfrest til að byrja að greiða af lánunum.
„Að mati FA eru mörg lítil og meðalstór fyrirtæki, sem fengu stuðningslán, enn ekki í aðstöðu til að greiða lánin niður á tólf mánuðum og hefur félagið sent fjármálaráðuneytinu erindi, þar sem hvatt er til að fjármálastofnunum verði heimilað að dreifa endurgreiðslunum á lengri tíma.“

Í tilkynningu FA kemur fram að af 1159 lánum voru 979 með 100 prósent ríkisábyrgð en 180 með 85 prósent ríkisábyrgð. FA og fleiri samtök hafa hvatt til þess að fyrirtækjum með stuðningslán, sem eru upp til hópa lítil og meðalstór, verði gefinn lengri tími til að greiða þau til baka en upphaflega var áformað, enda dróst faraldurinn á langinn með tilheyrandi áhrifum á tekjur margra fyrirtækja, að því er segir í tilkynningunni
„Félagið telur ástæðu til að beina því enn á ný til ráðuneytisins að það heimili lánastofnunum að lengja endurgreiðslutíma stuðningslána enn frekar til að koma til móts við þessi fyrirtæki. Að mati félagsins myndi það í einhverjum tilvikum stuðla að því að firra ríkissjóð frekara tjóni vegna greiðslufalls, vegna þess að ýmis fyrirtæki, sem ekki ráða við að endurgreiða lánin á næstu tólf mánuðum, myndu vel ráða við greiðslur sem dreift væri á t.d. 36 mánuði. FA vill aftur minna á að fjármálastofnanir þekkja viðskiptavini sína vel og eru í stakk búnar að meta endurgreiðslugetu og þanþol fyrirtækja,“ segir í erindi FA.