Stórstjörnurnar Leonardo DiCaprio, Jason Momoa og nú Hillary Swank hvetja íslensk stjórnvöld til þess að láta af hvalveiðum til frambúðar.
Nú síðast í bréfi sem fjöldi leikara, framleiðenda og umhverfissinna hafa skrifað undir sem starfa í Hollywood. Meðal þeirra sem skrifað hafa undir bréfið eru Momoa og Swank en einnig Shailene Woodley, Piper Perabo, Amy Smart, Amber Valleta, Eric Christian Olsen og fleiri en alls eru undirskriftirnar þegar fréttin er birt 28. Gert er ráð fyrir að fleiri bætist við næstu daga.
Matvælaráðherra kynnir á morgun ákvörðun sína um áframhaldandi veiðar og í bréfinu, sem sent var á hana í morgun, er bent á að árlega fjárfesti erlendir aðilar allt að 150 milljónum Bandaríkjadala í kvikmyndaverkefni hér á landi. Það samsvarar um nítján milljörðum íslenskra króna. Verði veiðar leyfðar á ný segjast þessir aðilar ekki ætla að koma hingað með verkefni sín, eða peninga.
Meðal þeirra sem standa að bréfinu eru þau Micah Garen og Anahita Babaei sem hafa verið hér í rúmt ár við gerð heimildarmyndar um hvalveiðar
„Eftir að hafa verið hér í einhvern tíma urðum við svo einnig hluti af hópi sem vinnur sameiginlega að því að stöðva hvalveiðar til frambúðar,“ segir Micah og að margir í Hollywood hafi miklar áhyggjur af stöðunni hér hvað varðar hvalveiðar og bendir á að í Bandaríkjunum séu veiðarnar bannaðar því dýrin séu í útrýmingarhættu.
Anahita segir þau enn vongóð um að ráðherra taki ákvörðun um að banna hvalveiðarnar.

„Það voru svo góðar fréttirnar sem við fengum í byrjun júní frá Svandísi. Augu allra eru á Íslandi og margir sem fögnuðu þessari ákvörðun höfðu enga hugmynd um að þær gætu hafist á ný núna,“ segir hún og að hún eigi von á hörðum viðbrögðum frá Hollywood og öðrum iðnaði eins og ferðamannaiðnaði verði veiðar leyfðar á ný.
„Öll ímynd Íslands er undir og við vonum öll að Svandís taki aðra hugrakka ákvörðun um að banna hvalveiðar. Við erum vongóð og vinnum að þessu markmiði þangað til það næst.“
Langreyðarnar mikilvægar heilbrigði hafsins
Micah bendir á að málið verði einnig að skoða í stærra samhengi. Það sé loftslagskrísa og að margar tegundir dýra séu í hættu.
„Plánetan er í miklum vandræðum og langreyðar skipta miklu máli fyrir líffræðilegan fjölbreytileika í hafinu. Auk þess sem þær skipta miklu máli fyrir heilbrigði hafsins og loftslagskrísuna,“ segir hann og að með ákvörðuninni sem var tekin í júní hafi það einnig verið staðfest að hvalirnir eigi tilverurétt samkvæmt íslenskum dýravelferðarlögum.
„Það ætti ekki því að veiða hvalina. Orðsporsáhættan sem er tekin með því að gera það er svakaleg. Kjötið er svo varla borðað á Íslandi og selt til Japan. Auk þess sem Kristján Loftsson tapar milljónum á veiðunum árlega. Það er ekkert vit í þessu, og sérstaklega ef við hugsum til þess að í húfi eru 150 milljónir í kvikmyndaiðnaðinum.“
Micah segir ekki einungis erlenda aðila standa að þessu átaki.
„Það vill þetta enginn. Enginn hér á landi og enginn erlendis,“ segir Micah og Anahita tekur undir það.
„Þetta er allt að gerast mjög hratt en það sem fólk þarf að hafa í huga er orðsporsáhættan. Þótt svo að það finnist lausn í málinu á næstu mánuðum þá er skaðinn skeður og Íslendingar geta þurft að takast á við það í langan tíma.“
Mikið undir í kvikmyndaiðnaði á Íslandi
Baltasar Kormákur segir marga í kvikmyndaiðnaði á Íslandi hafa áhyggjur.
„Þetta er áhyggjuefni. Að þetta sé komið á þennan stað og það yrði skelfilegt fyrir íslenskan kvikmyndaiðnað ef þetta yrði til þess að verkefnin kæmu ekki hingað.“
Hann segir upphæðina sem nefnda er í bréfinu raunhæfa og jafnvel geta verið hærri.
„Það hafa verið verkefni hérna, eins og True Detective, sem voru hátt í þessa upphæð. Þannig ég held að það séu jafnvel hærri upphæðir í framtíðinni sem er verið að taka áhættu með,“ segir hann og að um sé að ræða tekjur sem fara inn í atvinnulífið beint og óbeint.

„Það er mikið undir og það er búin að vera mikil innviðauppbygging í bransanum sem gæti skaðast af þessu. Menn hafa verið að byggja til framtíðar í þessum bransa.“
Mikill hiti í Hollywood
Hann segist reglulega heyra af áhyggjum fólks að utan.
„Þetta er ekkert nýtt af nálinni en það er ákveðinn fókus á þessu núna út af þessu tímabundna banni. Það er mikill hiti og ég hef meira að segja átt samtal við Dicaprio um þetta,“ segir Baltasar og að hans mati sé skoðun DiCaprio einlæg.
„Þetta er vel gefinn og vel hugsandi maður og það er erfitt að verja þetta. Sérstaklega með það í huga að minni hagsmunir eru í veði fyrir meiri.“
Hann segir að þegar stórstjörnur á borð við DiCaprio, Momoa og Swank blandi sér í svona mál geti það haft mikil áhrif.
„Þetta getur sett af stað keðju. Dicaprio og Momoa hafa feikilega mikil áhrif. Þeir hafa marga fylgjendur og það eru fleiri stjörnur sem munu fylgja þeim. Ég held að við verðum að taka þessu bréfi alvarlega. Þetta er mikið áhyggjuefni fyrir okkur sem erum í þessum bransa.“
Drukknum í blóðdrullupolli
Spurður hvað honum finnst persónulega um hvalveiðarnar segir Baltasar ákveðinn að honum finnist þær mikil tímaskekkja.
„Þetta tilheyrir fortíðinni og er ákveðið „Bjarts í Sumarhúsum“ heilkenni sem við virðumst vera haldin. Að við ætlum að falla á þetta sverð og drukkna í þessum blóðdrullupolli frekar en að horfa til framtíðar. Það er verið að leggja iðnað að veði, ferðamannabransann, kvikmyndabransann og orðspor Íslands, fyrir ekki meiri hagsmuni.“