Smartland greinir frá.
Um er að ræða 280 fermetra einbýli en í lýsingu á eigninni segri að húsið hafi verið í „frábæru viðhaldi og mikið endurnýjsð“. Húsinu fylgir garður með veröndum og heitur pottur. Baðherbergi eru hönnuð af Rut Káradóttur innanhúsarkitekt sem kom einnig að litavali á húsinu.
Efri hæðin skiptist í forstofu, gestasalerni, rúmgott hol, sjónvarpsstofa og nýlegt eldhús, borðstofu og stofu með arni. Svefnherbergisgangur er með herbergi/fataherbergi, hjónaherbergi og baðherbergi. Úr holi er hringstigi niður á neðri hæð sem skiptist í stórt þvottahús, tvöfaldan bílskúr og 75 fm tveggja herbergia aukaíbúð með sér inngangi.
Fanndís Friðriksdóttir hefur lengi verið ein besta fótboltakona landsins en hún á 107 A-landsliðsleiki fyrir Ísland og 17 mörk. Fanndís, sem spilar með Val, sneri aftur á völlinn í sumar eftir barnsburð og skoraði í leiknum.
Eyjólfur Héðinsson starfar nú sem afreksþjálfari hjá elstu flokkum karla í Breiðabliki. Hann spilaði síðast fyrir karlalið ÍR en áður spilaði hann bæði í efstu deild Danmerkur, með Midtjylland og SönderjyskE, og Svíþjóð með liðinu GAIS.
Þau Fanndís og Eyjólfur bjuggu áður í Foldasmára í Kópavogi.










