Á myndbandi sem fór í dreifingu á TikTok sást Son neita að taka sjálfu með aðdáanda á iPhone síma. Það má hann nefnilega ekki.
Ástæðan er að Son er með styrktarsamning við Samsung, helsta keppinaut Apple í símabransanum. Hann má ekki taka sjálfur á iPhone síma og ekki snerta síma frá bandaríska fyrirtækinu.
Son gerði veglegan samning við Samsung í sumar en hann er eins konar sendiherra suður-kóreska tækirisans og er duglegur að auglýsa vörur hans á Instagram. Auk Samsung er Son með styrktarsamninga við Calvin Klein, Burberry, Gatorade og tryggingafyrirtækið AIA Singapore.
Son og félagar í suður-kóreska landsliðinu gerðu markalaust jafntefli við Wales í vináttulandsleik á fimmtudaginn. Suður-Kórea mætir Sádi-Arabíu í vináttulandsleik í Newcastle á morgun.