Óvissustig Almannavarna hefur verið virkjað og von er á að viðbúnaðarstigið færist upp á hættustig seinna í dag.

Nánast samfelldri úrhellisrigningu er spáð fyrir austan næstu tvo sólarhringana. Ráðgert er að mesta úrkoman falli til fjalla og valdi vatnavöxtum í farvegum en við það aukast líkur á aurskriðum.
„Hætta er á auknu afrennsi og vatnavöxtum í ám og lækjum sem og líkur á flóðum og skriðuföllum, sem geta raskað samgöngum. Aukið álag getur orðið á fráveitukerfi og er fólk hvatt til að sýna aðgát og huga að niðurföllum til að forðast vatnstjón. Frá klukkan 18:00 verður farið á hættustig Almannavarna og verður Samhæfingarstöð Almannavarna virkjuð samhliða því. Rétt fyrir hádegi var litakóði vegna úrkomuákefðar ferður úr gulu og upp í appelsínugult á Austfjörðum þar sem ákefðin er mest,“ sagði í tilkynningu frá Almannavörnum fyrr í dag.
Fram kemur á vef Austurfrétta að á svæðinu sé fyrst og fremst atvinnuhúsnæði, meðal annars bæjarskrifstofurnar, frystihúsið, fiskimjölsbræðslan og Vjelsmiðja Jóhanns Hansonar sem hýsir sýningu Tækniminjasafns Austurlands. Síðastnefnda húsið skemmdist töluvert í skriðunum fyrir þremur árum en hefur verið lagfært.
Að neðan má sjá frá því þegar stór aurskriða féll á Seyðisfirði 18. desember fyrir tæpum þremur árum.
Fréttin hefur verið uppfærð.