Skoðun

Sjúkra­liðar mættir til leiks

Sandra B. Franks skrifar

Nýverið bárust fréttir að um fimm hundruð manns væru á biðlista eftir hjúkrunarrými á landinu og að byggja þurfi ígildi níu hjúkrunarheimila eingöngu í Reykjavík til að mæta gríðarlegri fjölgun eldri borgara. Forstjóri Sóltúns sagði af því tilefni að þjóðin væri að renna út á tíma í málefnum aldraðra.

Í dag búa um 3000 manns á hjúkrunarheimilum. Eftir 15 ár má gera ráð fyrir að heildarfjöldi íbúa á hjúkrunarheimilum verði 4500 því fólk er að eldast. Á næstu 15 árum gæti fólki á aldrinum 80 til 89 ára fjölgi um 85 prósent, en það er sá hópur sem í dag þarf hvað mestu heilbrigðisþjónustuna.

Í þessu ljósi er mikilvægt að minnast tíðinda sem átti sér stað síðastliðið vor en þá útskrifaðist hópur sjúkraliða í fyrsta sinn af háskólastigi með 60 eininga diplómagráðu. Þetta er hópur sem hefur einmitt lokið námi í öldrunar- og heimahjúkrun. En bætt öldrunarþjónusta og heimahjúkrun er lykillinn til að mæta þeirri samfélagslegri breytingu sem blasir við á Íslandi vegna hækkandi aldurs landsmanna.

Markmið námsins er að efla klíníska færni og fagmennsku, þekkingu á samskiptum sem meðferðartæki sem og á þátttöku í þverfaglegu samstarfi heilbrigðistétta. Skemmst er frá því að segja að heilbrigðisstofnanir um allt land hafa kalla eftir slíkri færni og þekkingu á meðal sjúkraliða. Ljóst er að námið hefur opnað á fjölmarga möguleika fyrir sjúkraliða til að takast á við fjölþættari störf og aukna ábyrgð. En eitt er ljóst að kröfurnar í heilbrigðiskerfinu aukast stöðugt og tækninni fleygir áfram. Þetta nám er einmitt hugsað til að mæta þeim kröfum.

Aukin þekking og færni

Meginmarkmið námsins á kjörsviði öldrunar- og heimahjúkrunar er m.a. að styrkja og auka þekkingu og færni starfandi sjúkraliða á eðlilegum öldrunarbreytingum, áhrifum öldrunartengdra sjúkdóma og bjargráðum við þeim. Áhersla er á persónumiðaða nálgun í heildrænni umönnun aldraðra einstaklinga og fjölskyldna þeirra. Nemendur fá mikilvæga innsýn í helstu líkamlegu, andlegu og félagslegu þætti sem eru viðfangsefni farsællar öldrunar. Í því samhengi læra nemendur um lífeðlisfræðilegar breytingar og áhrif þeirra á heilsu og virkni á efri árum.

Í náminu er fjallað um algenga langvinna sjúkdóma aldraðra en í því samhengi læra nemendur um möguleg og mismunandi áhrif þessara sjúkdóma á virkni og alhliða lífsgæði aldraðra. Þá læra nemendur um færni- og heilsufarsmat og framkvæmd þeirra auk þess um gerð áhættumats er kemur að þáttum eins og byltuhættu, húðheilsu, næringarástands, verkja, geðheilsu o.s.frv. Nemendur fá einnig kennslu og þjálfun í uppsetningu þvagleggja og æðaleggja, blóðtöku, blóðræktun, sárameðferðum og lyfjagjöfum. Sömuleiðis læra nemendur um algengustu lyfjaflokka aldraða, lyfjameðferðir og sérhæfðar meðferðir fyrir aldraða. Rýnt er í lyfjafræði með tillit til öldrunar, og farið yfir hvernig hækkaður aldur hefur áhrif á lyfjahvörf, lyfhrif, milliverkanir, aukaverkanir og meðferðafylgni. Nemendur öðlast einnig þekkingu á verkjum, verkjamat og verkjameðferð hjá öldruðum, sem og um meðferðatakmarkanir, líknar- og lífslokameðferðir.

Námið mætir brýnni þörf

Þörf fyrir þjónustu sjúkraliða gagnvart öldruðum mun eingöngu vaxa. Háskólinn á Akureyri hefur því mætt þessu ákalli samfélagsins og heilbrigðisþjónustunnar með því að bjóða upp á þetta metnaðarfulla hagnýta fagháskólanám. Þessu til viðbótar hafa stjórnvöld stutt vel við uppbyggingu námsins og talið það vera mikilvæga viðbót við heilbrigðisþjónustuna.

Sjúkraliðar með diplómapróf eru í reynd nýr valkostur og mikilvægur hlekkur í þjónustu hjúkrunar og framtíð heilbrigðiskerfisins. Það er því mikilvægt að stjórnendur í heilbrigðisþjónustunni taki vel á móti þessu nýja vinnuafli og finni því viðeigandi stað hjá sér, hvort sem litið er til verkefna, ábyrgðar eða kjara.

Höfundur er formaður Sjúkraliðafélags Íslands.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×