Met slegið í verðtryggðum íbúðalánum bankanna annan mánuðinn í röð
![Hrein ný verðtryggð lán bankanna með veði í íbúð námu um 17,7 milljörðum króna í ágúst og jukust um tvo milljarða frá fyrri mánuði.](https://www.visir.is/i/3317D54CF12C02D9C7B13FB85C946AA9C52658CBCF9CE1C1F99D05D6E17453B4_713x0.jpg)
Talsvert hefur hægt á útlánavexti bankanna til atvinnulífsins á undanförnum þremur mánuðum samhliða hækkandi fjármagnskostnaði en meðalvextir óverðtryggðra fyrirtækjalána voru farnir að nálgast tólf prósent fyrr í sumar. Á sama tíma er ekkert lát á tilfærslu heimila úr óverðtryggðum íbúðalánum yfir í verðtryggð en annan mánuðinn í röð var met slegið í nýjum verðtryggðum lánum bankanna með veði í íbúð.
Tengdar fréttir
![](https://www.visir.is/i/3DA1243B24D5CF8ED6FEE1A4C9D6830044A0B2973E396E05355294975C5AC373_308x200.jpg)
Fyrirtækin sækja í verðtryggð lán samhliða hækkandi vaxtastigi
Útlánavöxtur til atvinnulífsins er núna í auknum mæli borinn uppi af verðtryggðum lánum samhliða hækkandi vaxtastigi en ásókn fyrirtækja í slík lán hefur ekki verið meiri um langt skeið. Eftir vísbendingar um að draga væri nokkuð úr nýjum útlánum til fyrirtækja jukust þau talsvert að nýju í liðnum mánuði.
![](https://www.visir.is/i/74474EDAE5320A9F4B275E110FE698880CAC48EA222A94C160CAD90FD8DEA79F_308x200.jpg)
Vaxtaálag á lánum banka til heimila og fyrirtækja sjaldan verið lægra
Vaxtaálagið á nýjum útlánum í bankakerfinu til atvinnulífsins og heimila hefur fallið skarpt á síðustu misserum, einkum þegar kemur að íbúðalánum en munurinn á markaðsvöxtum og þeim vaxtakjörum sem bankarnir bjóða á slíkum lánum er nú sögulega lítill. Aukin samkeppni á innlánamarkaði á síðustu árum hefur meðal annars valdið því að vextir á óbundnum sparireikningum hafa nú aldrei verið hærri sem hlutfall af stýrivöxtum Seðlabankans.