Þetta kemur fram í tilkynningu á vef bankans. Breytilegir vextir þegar veittra lána til einstaklinga hækka 30 dögum eftir tilkynningu.
Vextir innlána taka breytingum samdægurs. Öll ný útlán bera nýju vextina.
Breytingarnar eru eftirfarandi:
Íbúðalán
- Verðtryggðir fastir íbúðalánavextir hækka um 0,50 prósentustig og verða 3,74%
- Verðtryggðir breytilegir íbúðalánavextir hækka um 0,50 prósentustig og verða 3,79%
- Óverðtryggðir fastir 3 ára íbúðalánavextir lækka um 0,20 prósentustig og verða 9,60%
- Óverðtryggðir breytilegir íbúðalánavextir eru óbreyttir og eru áfram 10,89%
Kjörvextir
- Almennir verðtryggðir kjörvextir hækka um 0,50 prósentustig
- Almennir óverðtryggðir kjörvextir eru óbreyttir
- Yfirdráttur og greiðsludreifing kreditkorta
- Yfirdráttarvextir og vextir greiðsludreifinga eru óbreyttir
Bílalán
- Kjörvextir bílalána eru óbreyttir
Innlán
- Vextir verðtryggðra sparnaðarreikninga hækka um allt að 1,00 prósentustig
- Breytilegir óverðtryggðir vextir veltureikninga og sparnaðarreikninga eru óbreyttir
Á vef bankans segir:
Breytingar á vöxtum verðtryggðra íbúðalána eru meðal annars tilkomnar vegna þróunar á skuldabréfamörkuðum þar sem ávöxtunarkrafa og þar með fjármögnunarkjör bankans hafa farið hækkandi.
Vaxtabreytingar útlána taka mið af fjármögnunarkostnaði bankans á hverjum tíma en einnig af öðrum þáttum, m.a. útlánaáhættu. Fjármögnunarkostnaður bankans fylgir að hluta til stýrivöxtum Seðlabankans en einnig hafa aðrar fjármögnunarleiðir umtalsverð áhrif, svo sem innlán viðskiptavina, markaðsfjármögnun, erlend skuldabréfaútgáfa og eiginfjárgerningar.
Breytingar á vöxtum lána sem falla undir lög um neytendalán eða lög um fasteignalán til neytenda taka gildi í samræmi við skilmála lánanna og tilkynningar um vaxtabreytingar.