Greenwood var handtekinn þann 30. janúar 2022 og ákærður fyrir líkamsárás og tilraun til nauðgunar. Mál hans var nýlega fellt niður vegna ónægra sönnunargagna og hann fór í kjölfarið á láni frá Manchester United til Getafe.
Hinn 22 ára lék sinn fyrsta og eina landsleik fyrir England gegn Íslandi í Þjóðadeildinni haustið 2020. Óvíst er hvort Greenwood muni leik aftur fyrir enska landsliðið en hann á möguleika á að spila fyrir það jamaíska þar sem faðir hans er frá landinu. Heimir hefur áhuga á að fá Greenwood í jamaíska landsliðið sem hann hefur stýrt undanfarið ár.
„Hann er búinn að vera mikið í umræðunni, bæði fyrir gæði og það sem gekk á í hans einkalífi. En eins og aðrir þjálfarar vil ég hafa gæðaleikmenn í liðinu mínu. Ég ætla ekkert að fela það, ég væri spenntur fyrir því. En það er svo sem ekki mín ákvörðun. Það eru forsetinn, framkvæmdastjórinn og aðrir sem ákveða það hvort hann sé velkominn eða ekki. Þeir hafa báðir gefið það út að þeir myndu vilja fá hann. Dyrnar eru opnar fyrir hann ef hann vill koma til okkar,“ sagði Heimir í samtali við Svövu Kristínu Gretarsdóttur í Sportpakkanum.

Heimir segist fylgjast með Greenwood líkt og öðrum leikmönnum sem eiga þess kost að spila fyrir jamaíska landsliðið.
„Að sjálfsögðu. Þetta er spennandi leikmaður. En við erum að fylgjast með mörgum leikmönnum sem við vitum að geta spilað fyrir okkur og hafa látið vita að þeir hafi áhuga á því. Við erum að reyna að vinna okkar vinnu eins vel og við getum,“ sagði Heimir.
En hefur Greenwood sjálfur áhuga á að spila fyrir Jamaíku?
„Hann hefur gefið það út og æfir meira að segja í landsliðsbúningi Jamaíku. Þannig að hann hefur gefið það í skyn,“ svaraði Heimir.
Hann segir eflaust séu skiptar skoðanir á Jamaíku hvort Greenwood eigi að spila fyrir landsliðið.
„Ég held að það sé eins og alls staðar, það eru alls konar skoðanir á því, og eðlilega. Hann fór til Spánar og það voru einhverjir sem voru á móti því og einhverjir með því. Þannig er það bara. Ég hef alltaf haft þá skoðun að allir eigi rétt á að fá annað tækifæri til að sýna sig og sanna. Maður fær ekki og nær ekki að þroskast nema maður geri mistök einhvers staðar á leiðinni og fái að bæta það upp.“
Horfa má á Heimi tala um Greenwood í spilaranum hér fyrir ofan.