Auðvitað geta allir verið aðeins of seinir stundum. Það þarf ekki nema nokkrar mínútur til að seinka öllu. Smá töf á leikskólanum, óvenju mikil traffík, einn morgun þar sem allir á heimilinu vöknuðu aðeins of seint.
Svo ekki sé talað um dagana þar sem íslenskt veðurfar hefur veruleg áhrif á allt!
En við erum ekki að tala um starfsfólkið sem í einstaka sinnum mætir aðeins of seint eða þarf að taka aðeins lengri hádegishlé.
Nei, við erum að tala um starfsfólkið sem einfaldlega er óstundvíst og nokkurn veginn mætir alltaf aðeins of seint.
Þetta er hvimleiður vani. Ekki aðeins eitthvað sem vinnuveitandi þarf að takast á við, heldur líka eitthvað sem fer oftast meira í taugarnar á samstarfsfólki viðkomandi en fólkið sjálft áttar sig á.
Því fyrr sem tekið er á þessari tegund óstundvísi, því betra.
Hins vegar eiga stjórnendur það til að ræða við allan hópinn um mætingar og stundvísi, í stað þess að ræða einungis við þann sem málið varðar.
Því já, að ræða persónulega óstundvísi er viðkvæmt umræðuefni.
Hér eru nokkur góð ráð.
Ekki fá í taugarnar
Að taka eftir ítrekaðri óstundvísi hjá starfsmanni og láta það fara í taugarnar á sér er ekki í boði.
Sem yfirmaður þarftu að takast á við málið og pirringur er ekki að fara að laga neitt.
Sem stjórnandi eru meiri líkur á að þú tæklir málið á yfirvegaðan og jákvæðan hátt, ef þú bíður ekki of lengi með að takast á við vandamálið.
Ekki ræða málin fyrir framan alla
Það getur verið freistandi að tala um óstundvísina við aðra starfsmenn. Sérstaklega þegar þú veist að þessi óstundvísi fer í taugarnar á öðru starfsfólki líka.
Þetta er ekki viðeigandi. Ekki heldur að andvarpa, ranghvolfa augunum eða tjá þig með einhverjum hætti við aðra starfsmenn til staðfestingar á því að þér finnist þetta jafn óviðunandi og þeim: Sýndu ábyrgð og taktu á málum!
Samtalið sjálft
Samtalið þarf að fara fram í einrúmi og það er mikilvægt að þú undirbúir þig undir það samtal.
Ræddu málin á yfirvegaðan hátt þannig að samtalið virki ekki eins og árás á viðkomandi. Það gagnast síður ef viðkomandi fer í vörn.
Gefðu viðkomandi líka færi á að tjá sig. Hvað veldur því að viðkomandi er alltaf of seinn? Hvernig upplifir viðkomandi sjálfur sína óstundvísi? Hefur kannski eitthvað breyst og er þetta nýtilkomin hegðun?
Eftir gott samtal skiptir þó máli að væntingarnar þínar um breytingar séu mjög skýrar. Þess vegna er gott að ákveða strax annan fund þar sem ætlunin er að ræða málin aftur. Þar með er komin hvati hjá viðkomandi til að bæta úr.
Að líta í eigin barm
Þá er líka alltaf gott að líta í eigin barm: Hvers konar fyrirmynd ert þú sem yfirmaður? Ertu stundvís? Eða vinnur þú oft fram eftir og mætir seinna á morgnana?
Það er alls ekkert víst að starfsfólkið þitt átti sig á því hvort vinnufyrirkomulagið þitt sé þannig að þú mætir seinna á morgnana vegna þess að þú vinnur lengur á daginn, á kvöldin eða um helgar. Ef svo er, þarftu að útskýra það fyrir fólki að vinnutíminn þinn sé öðruvísi en þeirra sem fara heim klukkan fjögur, fimm eða sex.
Í þessu samhengi má líka spyrja: Er þetta fyrirkomulag í boði fyrir aðra starfsmenn einnig? Er sveigjanlegur vinnutími þar sem mæting síðar á morgnana býður upp á að starfsfólk vinni lengur á daginn? Hversu skýrar eru reglurnar á vinnustaðnum og hversu sýnilegar eru þær öllum? Því fólk þarf að vera vel upplýst.
Loks má benda á að samkvæmt rannsóknum, mælist stundvísi betri hjá starfsfólki sem upplifir sig í góðu sambandi við yfirmenn sína.