Rafíþróttir

Tilþrifin: Einn á móti fjórum klárar allee lotuna

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
canvas

Vísir birtir Elko tilþrif kvöldsins úr Ljósleiðaradeildinni í CS:GO eftir hvern keppnisdag í allan vetur. Í þetta sinn er það allee í liði Þórs sem á heiðurinn af tilþrifum kvöldsins.

Þór og Saga mættust í mögnuðum leik síðastliðinn fimmtudag þar sem úrslitin réðust ekki fyrr en í þriðju framlengingu. Þar voru það Þórsarar sem höfðu betur og með sigrinum lyfti liðið sér upp í toppsæti deildarinnar.

Ásamt því að vinna þennan æsispennandi leik sýndi allee, leikmaður Þórs, einnig frábær tilþrif í leiknum. Í stöðunni 9-6, Þórsurum í vil, var allee einn á móti fjórum leikmönnum Saga. Hann felldi tvo áður en hann kom sprengjunni fyrir, en í staðinn fyrir að bíða eftir að sprengjunni fór hann og felldi einnig hina tvo leikmenn andstæðinganna.

Tilþrifin má sjá í spilaranum hér fyrir neðan.

Klippa: Elko tilþrifin: Einn á móti fjórum klárar allee lotuna





×