Sædís Rún æfir með Chelsea Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 2. nóvember 2023 13:00 Sædís Rún Heiðarsdóttir í leik með íslenska landsliðinu á móti Þýskalandi. Vísir/Diego Íslenska landsliðskonan Sædís Rún Heiðarsdóttir er flogin til Englands þar sem hún mun æfa með Englandsmeisturum Chelsea næstu daga.
Samkvæmt heimildum Fótbolta.net þá var bakverðinum efnilega boðið að æfa með besta liði ensku úrvalsdeildarinnar undanfarin fjögur ár. Sædís, sem er nítján ára gömul, spilaði sína fyrsta byrjunarliðsleiki með A-landsliðinu í síðasta glugga en hún er líka fyrirliði íslenska nítján ára landsliðsins. Chelsea hefur sex sinnum orðið Englandsmeistari þar af fjögur ár i röð. Emmu Hayes tók við liðinu árið 2012 og hefur byggt upp stórveldi. Sædís yrði ekki fyrsta íslenska knattspyrnukonan til að spila með Chelsea en Edda Garðarsdóttir og Ólína Guðbjörg Viðarsdóttir spiluðu með liðinu árið 2013 eða stuttu eftir að Emma tók við. Sædís Rún átti frábært tímabil með Stjörnunni í Bestu deildinni og var með þrjú mörk og níu stoðsendingar úr vinstri bakvarðarstöðunni. Hún vann sér sæti sæti í A-landsliðinu og spilaði sína fyrstu þrjá landsleiki í Þjóðadeildinni í haust. Sædís er alin upp hjá Víkingi Ólafsvík á Snæfellsnesi en kom til Stjörnunnar árið 2020 eða þegar hún var aðeins sextán ára. Sædís hefur síðan komið sér á kortið, bæði með frammistöðu sinni með Stjörnunni sem og með að vinna sér sæti í byrjunarliði landsliðsins. Það eru því miklar líkur á því að hún fái tækifæri í atvinnumennsku fyrr en síðar.
Besta deild kvenna Stjarnan Mest lesið Gagnrýnir CrossFit: Flýja alla ábyrgð og láta aðra sjá um kostnaðinn Sport Arne Slot: Hættuleg helgi fyrir Liverpool Enski boltinn Fær meira fyrir hálftíma ræðu en fyrir að spila heilt tímabil Körfubolti Arnar og Freyr ekki efstir á óskalista Óskars Hrafns Fótbolti „Ef þeim líkar ekki maturinn geta þeir dullað sér út“ Körfubolti Ætlaði að ná hundraðasta sigrinum en endaði upp á spítala Sport Launaði greiðann og gaf liðsfélaganum sigurinn Formúla 1 „Ég fór ekkert alltof seint að sofa“ Handbolti Rautt spjald eftir þrjátíu sekúndur en unnu samt úrslitaleikinn Fótbolti Tekur barnið sitt úr leikskóla svo að skíðakonan geti haldið jólin með þeim Sport Fleiri fréttir Liverpool bara með einn sigur í síðustu níu leikjum á móti Man. City Rautt spjald eftir þrjátíu sekúndur en unnu samt úrslitaleikinn Arnar og Freyr ekki efstir á óskalista Óskars Hrafns Dagur Dan komst ekki í úrslitaleikinn Arne Slot: Hættuleg helgi fyrir Liverpool Fallbaráttulið Nantes tók stig af meisturunum Musiala bjargaði stigi fyrir Bayern AC Milan aftur á sigurbraut Mark dæmt af Elíasi en liðið upp um fjögur sæti Þrenna og vítaþrenna í leikjum dagsins Sjö marka fyrri hálfleikur skaut Skyttunum í annað sætið HM í fótbolta 2034 mun fara fram um vetur Börsungar töpuðu óvænt á heimavelli Frábær byrjun Slot ekki nóg til að slá út Solskjær Óskar Hrafn opnar sig um Haugesund: Best að falla á eigið sverð Messi segist sakna Barcelona Guardiola: Núna þarf ég að sanna mig Guðmundur gæfi Kelleher risa samning: „Hverrar krónu virði og rúmlega það“ Fékk rétt svör við öllu nema um bjórinn Liverpool fékk slæmar fréttir fyrir risaleikinn Fimm mínútna VAR-dómur en fyrsta útistig Southampton Þær norsku geta nánast fagnað eins og Ísland gerði Ísland nær sigri í slagnum við Kanada Sterkt lið Íslands gegn Kanada í kvöld Jenas missir annað starf Leicester-menn skammaðir fyrir jólapartíið Heimaleikur Íslands fer fram á Spáni Keflvíkingar keyptu leikmann frá Njarðvík Ákall á forsíðu stórblaðsins: Bjargið leikmanninum Segja Íslendinginn tilbúinn í það að verða næsta stjarna Bandaríkjamanna Sjá meira