Ingó hafði betur í Landsrétti gegn Sindra Þór Árni Sæberg og Jón Þór Stefánsson skrifa 10. nóvember 2023 14:08 Ingólfur í Héraðsdómi Reykjavíkur á sínum tíma. Vísir/Vilhelm Ingólfur Þórarinsson, betur þekktur sem Ingó veðurguð, hafði í dag betur í meiðyrðamáli sínu á hendur Sindra Þór Sigríðarsyni Hilmarssyni í Landsrétti. Sindri Þór mátti ekki viðhafa ummæli á borð við „Skemmtikraftur sem hefur stundað það síðastliðin 12-13 ár að ríða börnum.“ Ummæli Sindra Þórs voru dæmd dauð og ómerk. Sindri Þór var dæmdur til að greiða Ingólfi 900 þúsund krónur í miskabætur auk vaxta. Þá var hann dæmdur til að greiða Ingólfi málskostnað, sem naut þó gjafsóknar í málinu. Ingólfur krafðist þess að fimm ummæli Sindra um sig yrðu dæmd dauð og ómerk. Þá krafðist hann þriggja milljóna króna í miskabætur. Ummælin beindust öll að meintum kynferðisbrotum Ingólfs en Sindri lét ummælin falla í kjölfar þess að aðgerðahópurinn Öfgar birti nafnlausar sögur meintra þolenda tónlistarmannsins. Ummæli Sindra sem tekist var á um „Maður sem er svo þekktur fyrir að ríða börnum…“ „Hvað finnst þér réttlætanlegt að fullorðinn maður nýti frægð sína og valdastöðu til að ríða mörgum börnum…“ „Skemmtikraftur sem hefur stundað það síðastliðin 12-13 ár að ríða börnum…“ „Trallað í skítbeisikk kassagítarútgáfu af manni sem ríður börnum…“ „Til að vinna örugglega unlikable keppnina þá splæsir eigandinn í barnaríðinginn.“ Sindri var sýknaður af öllum kröfum Ingólfs í héraði í maí árið 2022. Í dómi héraðsdóms sagði að Sindri hefði í góðri trú viðhaft ummælin vegna Twitter-þráðs, sem vakti mikla umræðu, þar sem fjöldi fólks lýsti sögum sem það hafði heyrt af Ingólfi í gegn um tíðina. Ingólfur ákvað að áfrýja málinu og lögmaður hans, Auður Björg Jónsdóttir, lét hafa eftir sér að miðað við niðurstöðu héraðsdóms mætti segja hvað sem er um hvern sem er og vísa í kjaftasögu til stuðnings. „Við teljum dóminn bersýnilega rangan og áfrýjum í því skyni að fá honum hnekkt. Ég myndi aldrei leggja til að áfrýja málinu nema ef ég myndi telja svo vera,“ sagði hún í samtali við Vísi. Mál Ingólfs Þórarinssonar Dómsmál Tjáningarfrelsi Tengdar fréttir Ingó veðurguð á gestalista Sindra þrátt fyrir meiðyrðamál Áfrýjun í máli Ingólfs Þórarinssonar, þekktur sem Ingó veðurguð, á hendur Sindra Þórs Sigríðarsonar fyrir meiðyrði verður tekið fyrir í Landsrétti 17. október næstkomandi. 11. október 2023 09:01 Kærasta Ingólfs segir yfirlýsta femínista hafa ítrekað beitt sig ofbeldi Alexandra Eir Davíðsdóttir segist ítrekað hafa verið beitt ofbeldi af hálfu hópa sem segjast berjast gegn ofbeldi og réttindum kvenna, einungis vegna þess hver maki hennar er. Hún segir þetta fólk hafa birt heimilisfang hennar opinberlega svo hægt væri að eggja húsið eða beita hana eða kærasta hennar líkamlegu ofbeldi. 7. mars 2023 12:31 „Ekkert fyrirtæki vill ráða nauðgara eða barnaríðara, en ég er það ekki“ Tónlistarmaðurinn Ingólfur Þórarinsson, betur þekktur sem Ingó veðurguð, segir ekkert fyrirtæki vilja ráða til sín mann sem sé sakaður um að brjóta á börnum. Hann hafi aldrei verið kærður til lögreglu og ásakanir í hans garð eigi allar sameiginlegt að vera nafnlausar frásagnir. 2. maí 2022 11:14 Ingó tilkynnti í dómsal að hann ætti von á barni Tónlistarmaðurinn Ingólfur Þórarinsson, betur þekktur sem Ingó veðurguð, sagði frá því í dómsal í morgun að hann ætti von á barni. 2. maí 2022 11:40 Ingó og Sindri takast á um umdeild ummæli í dómsal Aðalmeðferð í máli Ingólfs Þórarinssonar tónlistarmanns, betur þekktur sem Ingó Veðurguð, gegn Sindra Þór Sigríðarsyni Hilmarssyni er hafin í Héraðsdómi Reykjavíkur. Báðir voru mættir í dómsal þar sem þinghald hófst klukkan 10. 2. maí 2022 10:29 Ingó segist ekki hafa neinu að tapa lengur Síðasta tæpa ár hefur reynst Ingólfi Þórarinssyni tónlistarmanni þungbært en hann hefur setið undir ásökunum um margvíslegt kynferðislegt ofbeldi. Ingólfur vísar ásökunum alfarið á bug og hefur nú skrifað grein þar sem hann fer ítarlega yfir sína hlið mála. 22. mars 2022 08:06 Mest lesið Ósáttir kennarar yfirgefa skólana Innlent Sveitarfélögin höfnuðu tillögunni á elleftu stundu Innlent Ætlar að tjalda í Kópavogi þangað til meirihlutinn springur Innlent Algengt að rútubílstjórar keyri á túninu Innlent Uggur í fólki og Hinsegin kórinn hættur við að taka þátt í World Pride í Washington Innlent Verkföll hafin í sex skólum Innlent Árásarmaðurinn hafi átt í samskiptum við lykilvitni Innlent Þóra Tómasdóttir strýkur Tesla-eigendum öfugt Innlent Áfastir tappar dragi úr lífsvilja Innlent Gátu ekki lent í þoku í Osló því flugmenn eru enn í þjálfun á Airbus Innlent Fleiri fréttir Svona skipta oddvitarnir stólunum Voru búin að segja að þeim hugnaðist ekki tillaga Ástráðs Stefán útvarpsstjóri vandar Mogganum ekki kveðjurnar Henti byssunni upp á þak um hábjartan dag „Þetta eru mikil vonbrigði fyrir okkur“ Skilur vel reiðina sem blossi upp Útganga kennara kom formanninum í opna skjöldu Gátu ekki lent í þoku í Osló því flugmenn eru enn í þjálfun á Airbus Bein útsending: Blaðamannafundur nýs meirihluta í Reykjavík Óljóst með skólahald eftir helgi Trans fólk veigri sér við ferðalögum til Bandaríkjanna Nýr meirihluti muni ekki vaða í stærri deilumál Ósáttir kennarar yfirgefa skólana Jöklar jarðar rýrna mun hraðar en áður vegna aukinnar hlýnunar Niðurstöðu beðið í Karphúsinu Sveitarfélögin höfnuðu tillögunni á elleftu stundu Algengt að rútubílstjórar keyri á túninu Búrfellslundur verður Vaðölduver Uggur í fólki og Hinsegin kórinn hættur við að taka þátt í World Pride í Washington Ætlar að tjalda í Kópavogi þangað til meirihlutinn springur Zúistabræður telja sig ekki hafa fengið sanngjarna meðferð Verkföll hafin í sex skólum Kennaraverkföll skella á Skólameistari gengur út frá því að kennarar leggi niður störf Óvissa um verkföll eftir frestunarbeiðni Áfastir tappar dragi úr lífsvilja Árásarmaðurinn hafi átt í samskiptum við lykilvitni „Hún verður örugglega afbragðsborgarstjóri“ Heiða Björg verður borgarstjóri Ögurstund, staða Play og óreyndur rútubílstjóri Sjá meira
Ummæli Sindra Þórs voru dæmd dauð og ómerk. Sindri Þór var dæmdur til að greiða Ingólfi 900 þúsund krónur í miskabætur auk vaxta. Þá var hann dæmdur til að greiða Ingólfi málskostnað, sem naut þó gjafsóknar í málinu. Ingólfur krafðist þess að fimm ummæli Sindra um sig yrðu dæmd dauð og ómerk. Þá krafðist hann þriggja milljóna króna í miskabætur. Ummælin beindust öll að meintum kynferðisbrotum Ingólfs en Sindri lét ummælin falla í kjölfar þess að aðgerðahópurinn Öfgar birti nafnlausar sögur meintra þolenda tónlistarmannsins. Ummæli Sindra sem tekist var á um „Maður sem er svo þekktur fyrir að ríða börnum…“ „Hvað finnst þér réttlætanlegt að fullorðinn maður nýti frægð sína og valdastöðu til að ríða mörgum börnum…“ „Skemmtikraftur sem hefur stundað það síðastliðin 12-13 ár að ríða börnum…“ „Trallað í skítbeisikk kassagítarútgáfu af manni sem ríður börnum…“ „Til að vinna örugglega unlikable keppnina þá splæsir eigandinn í barnaríðinginn.“ Sindri var sýknaður af öllum kröfum Ingólfs í héraði í maí árið 2022. Í dómi héraðsdóms sagði að Sindri hefði í góðri trú viðhaft ummælin vegna Twitter-þráðs, sem vakti mikla umræðu, þar sem fjöldi fólks lýsti sögum sem það hafði heyrt af Ingólfi í gegn um tíðina. Ingólfur ákvað að áfrýja málinu og lögmaður hans, Auður Björg Jónsdóttir, lét hafa eftir sér að miðað við niðurstöðu héraðsdóms mætti segja hvað sem er um hvern sem er og vísa í kjaftasögu til stuðnings. „Við teljum dóminn bersýnilega rangan og áfrýjum í því skyni að fá honum hnekkt. Ég myndi aldrei leggja til að áfrýja málinu nema ef ég myndi telja svo vera,“ sagði hún í samtali við Vísi.
Ummæli Sindra sem tekist var á um „Maður sem er svo þekktur fyrir að ríða börnum…“ „Hvað finnst þér réttlætanlegt að fullorðinn maður nýti frægð sína og valdastöðu til að ríða mörgum börnum…“ „Skemmtikraftur sem hefur stundað það síðastliðin 12-13 ár að ríða börnum…“ „Trallað í skítbeisikk kassagítarútgáfu af manni sem ríður börnum…“ „Til að vinna örugglega unlikable keppnina þá splæsir eigandinn í barnaríðinginn.“
Mál Ingólfs Þórarinssonar Dómsmál Tjáningarfrelsi Tengdar fréttir Ingó veðurguð á gestalista Sindra þrátt fyrir meiðyrðamál Áfrýjun í máli Ingólfs Þórarinssonar, þekktur sem Ingó veðurguð, á hendur Sindra Þórs Sigríðarsonar fyrir meiðyrði verður tekið fyrir í Landsrétti 17. október næstkomandi. 11. október 2023 09:01 Kærasta Ingólfs segir yfirlýsta femínista hafa ítrekað beitt sig ofbeldi Alexandra Eir Davíðsdóttir segist ítrekað hafa verið beitt ofbeldi af hálfu hópa sem segjast berjast gegn ofbeldi og réttindum kvenna, einungis vegna þess hver maki hennar er. Hún segir þetta fólk hafa birt heimilisfang hennar opinberlega svo hægt væri að eggja húsið eða beita hana eða kærasta hennar líkamlegu ofbeldi. 7. mars 2023 12:31 „Ekkert fyrirtæki vill ráða nauðgara eða barnaríðara, en ég er það ekki“ Tónlistarmaðurinn Ingólfur Þórarinsson, betur þekktur sem Ingó veðurguð, segir ekkert fyrirtæki vilja ráða til sín mann sem sé sakaður um að brjóta á börnum. Hann hafi aldrei verið kærður til lögreglu og ásakanir í hans garð eigi allar sameiginlegt að vera nafnlausar frásagnir. 2. maí 2022 11:14 Ingó tilkynnti í dómsal að hann ætti von á barni Tónlistarmaðurinn Ingólfur Þórarinsson, betur þekktur sem Ingó veðurguð, sagði frá því í dómsal í morgun að hann ætti von á barni. 2. maí 2022 11:40 Ingó og Sindri takast á um umdeild ummæli í dómsal Aðalmeðferð í máli Ingólfs Þórarinssonar tónlistarmanns, betur þekktur sem Ingó Veðurguð, gegn Sindra Þór Sigríðarsyni Hilmarssyni er hafin í Héraðsdómi Reykjavíkur. Báðir voru mættir í dómsal þar sem þinghald hófst klukkan 10. 2. maí 2022 10:29 Ingó segist ekki hafa neinu að tapa lengur Síðasta tæpa ár hefur reynst Ingólfi Þórarinssyni tónlistarmanni þungbært en hann hefur setið undir ásökunum um margvíslegt kynferðislegt ofbeldi. Ingólfur vísar ásökunum alfarið á bug og hefur nú skrifað grein þar sem hann fer ítarlega yfir sína hlið mála. 22. mars 2022 08:06 Mest lesið Ósáttir kennarar yfirgefa skólana Innlent Sveitarfélögin höfnuðu tillögunni á elleftu stundu Innlent Ætlar að tjalda í Kópavogi þangað til meirihlutinn springur Innlent Algengt að rútubílstjórar keyri á túninu Innlent Uggur í fólki og Hinsegin kórinn hættur við að taka þátt í World Pride í Washington Innlent Verkföll hafin í sex skólum Innlent Árásarmaðurinn hafi átt í samskiptum við lykilvitni Innlent Þóra Tómasdóttir strýkur Tesla-eigendum öfugt Innlent Áfastir tappar dragi úr lífsvilja Innlent Gátu ekki lent í þoku í Osló því flugmenn eru enn í þjálfun á Airbus Innlent Fleiri fréttir Svona skipta oddvitarnir stólunum Voru búin að segja að þeim hugnaðist ekki tillaga Ástráðs Stefán útvarpsstjóri vandar Mogganum ekki kveðjurnar Henti byssunni upp á þak um hábjartan dag „Þetta eru mikil vonbrigði fyrir okkur“ Skilur vel reiðina sem blossi upp Útganga kennara kom formanninum í opna skjöldu Gátu ekki lent í þoku í Osló því flugmenn eru enn í þjálfun á Airbus Bein útsending: Blaðamannafundur nýs meirihluta í Reykjavík Óljóst með skólahald eftir helgi Trans fólk veigri sér við ferðalögum til Bandaríkjanna Nýr meirihluti muni ekki vaða í stærri deilumál Ósáttir kennarar yfirgefa skólana Jöklar jarðar rýrna mun hraðar en áður vegna aukinnar hlýnunar Niðurstöðu beðið í Karphúsinu Sveitarfélögin höfnuðu tillögunni á elleftu stundu Algengt að rútubílstjórar keyri á túninu Búrfellslundur verður Vaðölduver Uggur í fólki og Hinsegin kórinn hættur við að taka þátt í World Pride í Washington Ætlar að tjalda í Kópavogi þangað til meirihlutinn springur Zúistabræður telja sig ekki hafa fengið sanngjarna meðferð Verkföll hafin í sex skólum Kennaraverkföll skella á Skólameistari gengur út frá því að kennarar leggi niður störf Óvissa um verkföll eftir frestunarbeiðni Áfastir tappar dragi úr lífsvilja Árásarmaðurinn hafi átt í samskiptum við lykilvitni „Hún verður örugglega afbragðsborgarstjóri“ Heiða Björg verður borgarstjóri Ögurstund, staða Play og óreyndur rútubílstjóri Sjá meira
Ingó veðurguð á gestalista Sindra þrátt fyrir meiðyrðamál Áfrýjun í máli Ingólfs Þórarinssonar, þekktur sem Ingó veðurguð, á hendur Sindra Þórs Sigríðarsonar fyrir meiðyrði verður tekið fyrir í Landsrétti 17. október næstkomandi. 11. október 2023 09:01
Kærasta Ingólfs segir yfirlýsta femínista hafa ítrekað beitt sig ofbeldi Alexandra Eir Davíðsdóttir segist ítrekað hafa verið beitt ofbeldi af hálfu hópa sem segjast berjast gegn ofbeldi og réttindum kvenna, einungis vegna þess hver maki hennar er. Hún segir þetta fólk hafa birt heimilisfang hennar opinberlega svo hægt væri að eggja húsið eða beita hana eða kærasta hennar líkamlegu ofbeldi. 7. mars 2023 12:31
„Ekkert fyrirtæki vill ráða nauðgara eða barnaríðara, en ég er það ekki“ Tónlistarmaðurinn Ingólfur Þórarinsson, betur þekktur sem Ingó veðurguð, segir ekkert fyrirtæki vilja ráða til sín mann sem sé sakaður um að brjóta á börnum. Hann hafi aldrei verið kærður til lögreglu og ásakanir í hans garð eigi allar sameiginlegt að vera nafnlausar frásagnir. 2. maí 2022 11:14
Ingó tilkynnti í dómsal að hann ætti von á barni Tónlistarmaðurinn Ingólfur Þórarinsson, betur þekktur sem Ingó veðurguð, sagði frá því í dómsal í morgun að hann ætti von á barni. 2. maí 2022 11:40
Ingó og Sindri takast á um umdeild ummæli í dómsal Aðalmeðferð í máli Ingólfs Þórarinssonar tónlistarmanns, betur þekktur sem Ingó Veðurguð, gegn Sindra Þór Sigríðarsyni Hilmarssyni er hafin í Héraðsdómi Reykjavíkur. Báðir voru mættir í dómsal þar sem þinghald hófst klukkan 10. 2. maí 2022 10:29
Ingó segist ekki hafa neinu að tapa lengur Síðasta tæpa ár hefur reynst Ingólfi Þórarinssyni tónlistarmanni þungbært en hann hefur setið undir ásökunum um margvíslegt kynferðislegt ofbeldi. Ingólfur vísar ásökunum alfarið á bug og hefur nú skrifað grein þar sem hann fer ítarlega yfir sína hlið mála. 22. mars 2022 08:06