Skoðun

Verndum mikil­væga inn­viði

Finnur Beck skrifar

Einstakir atburðir eiga sér nú stað á Reykjanesi. Skjálftavirkni og yfirvofandi hætta á eldgosi hafa lamað hluta byggðar og hugur allra Íslendinga er með Grindvíkingum sem hafa þurft að yfirgefa heimili sín. Í námunda við mestu jarðhræringarnar eru orku- og veituinnviðir sem þjóna lykilhlutverki á Reykjanesskaganum öllum.

Orkuverið í Svartsengi sér nálægt 30.000 manns á Reykjanesskaga fyrir lífsnauðsynjum og lífsgæðum. Það hefur þjónað byggðinni á Suðurnesjum í áratugi og byggst upp samhliða vexti á svæðinu. Í orkuverinu er framleidd raforka, heitt og kalt vatn og dreifikerfi HS Veitna og Grindavíkurbæjar kemur þessu til endanotenda. Þá eru á Suðurnesjum aðrir samfélagslega mikilvægir innviðir s.s. línur og strengir til flutnings raforku auk lagna sem flytja heitt vatn. Starfsfólk allra þeirra fyrirtækja sem reka þessa innviði hefur, líkt og aðrir viðbragðsaðilar í stjórnkerfinu, unnið mikið starf og sýnt aðdáunarverða elju í að mæta þeim áskorunum sem uppi eru.

Komi til alvarlegrar röskunar á starfsemi orkuversins í Svartsengi, hvað þá varanlegs tjóns, verða áhrifin ekki bundin við Grindavík heldur Reykjanesskagann allan. Rofni vatns- eða hitaveita, tímabundið eða varanlega, er ljóst að áhrifin verða mikil á heimili fólks og starfsemi fyrirtækja á öllum Suðurnesjum. Sama gildir ef verulegt tjón verður á flutningsmannvirkjum raforku.

Verkefni stjórnvalda gerast ekki mikið umfangsmeiri og mikilvægt er að stjórnmálamenn hefji sig yfir dægurþras og forgangsraði með hliðsjón af þeim miklu sameiginlegu hagsmunum sem nú er stefnt í hættu.

Samorka fagnar skjótum viðbrögðum stjórnvalda við þeirri vá sem nú steðjar að byggð og innviðum á Reykjanesi með því að leggja fram frumvarp til laga um vernd mikilvægra innviða á Reykjanesi. Markmið frumvarpsins er að verja mikilvæga innviði og aðra almannahagsmuni á Reykjanesskaga fyrir hugsanlegum eldsumbrotum.

Með frumvarpinu er ráðherra sem fer með málefni almannavarna, við tiltekin skilyrði, veitt heimild til að heimila fyrirbyggjandi aðgerðir gegn áhrifum eldsumbrota. Slík heimild verður vitaskuld alltaf byggð á besta mati færustu vísindamanna í náttúruvísindum og sérfræðinga sem geta metið hvað raunhæft er að reyna til að sporna gegn náttúruöflunum. Þá er í frumvarpinu gert ráð fyrir því að ákvæði í sérlögum um framkvæmdir víki við slíkar aðstæður.

Eins og fram kemur í frumvarpinu er það frumskylda ríkisvaldsins að vernda mikilvæga innviði samfélagsins og aðra almannahagsmuni fyrir tjóni af völdum náttúruvár.

Tryggja þarf heimildir svo unnt sé að hefja framkvæmdir til að fyrirbyggja, afstýra eða draga úr tjóni á mikilvægum innviðum áður en það kann að reynast of seint. Er þar sérstaklega vísað til orkuversins í Svartsengi og eftir atvikum dreifi- og flutningslagna á því svæði sem nú steðjar hætta að. Samorka styður áform um að frumvarp til laga um vernd mikilvægra innviða á Reykjanesskaga verði að lögum svo skjótt sem verða má.

Höfundur er framkvæmdastjóri Samorku.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×