Kristján Kristjánson heldur, eðlilega, áfram að fjalla um hinar ýmsu hliðar ástandsins á Reykjanesi. Grindavík er lokuð og næsta víst að Grindvíkingar verða að fagna jólum fjarri heimabyggð, ef marka má talsmenn Almannavarna.
Þau Guðrún Hafsteinsdóttir dómsmálaráðherra, Guðmundur Ingi Guðbrandsson félagsmálaráðherra og Fannar Jónasson, bæjarstjóri í Grindavík ræða stöðuna.
Þá heyrir Kristján einnig í Finnbirni A. Hermannssyni, forseta ASÍ, og Arnari Má Ólafssyni, ferðamálastjóra sem vinnur að því hörðum höndum að setja upp Fjölmiðlastöð fyrir erlenda fjölmiðla vegna mikillar umfjöllunar
Konráð Guðjónsson, hagfræðingur hjá Arion banka lýkur þættinum með því að ræða áhrif þróunar undanfarinna daga á helstu hagstærðir.