Ásgeir Jónsson, seðlabankastjóri og formaður peningastefnunefndar, Rannveig Sigurðardóttur, varaseðlabankastjóri peningastefnu og staðgengill formanns og Þórarinn G. Pétursson, aðalhagfræðingur Seðlabankans, munu grein fyrir yfirlýsingu peningastefnunefndar og kynna efni Peningamála.
Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands tilkynnti í morgun að ákveðið hafi verið að halda stýrivöxtum óbreyttum. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, verða því áfram 9,25 prósent.
Hægt verður að fylgjast með fundinum í spilaranum að neðan og í vaktinni að neðan. Ef vaktin birtist ekki þá er ráð að endurhlaða síðuna.