Þetta kemur fram í umfjöllun Heimildarinnar um málið, þar sem greint er frá því að eigandi húsnæðisins sé fjárfestingarfyrirtækið Alva Capital. Maðurinn sem lést var frá Rúmeníu og á fertugsaldri. Einungis örfáar vikur eru síðan að annar maður lést eftir eldsvoða í sambærilegu húsnæði á Funahöfða.
Örvar Rafnsson, framkvæmdastjóri Alva Capital, hafnaði beiðni um að veita fréttastofu viðtal en féllst á að veita skrifleg svör. Hann segir erfitt að fullyrða nokkuð um það hvort hægt hefði verið að koma í veg fyrir brunann.
„Af virðingu við fjölskyldu hins látna teljum við ekki rétt að við séum með getgátur um slíkt fyrr en rannsókn er lokið,“ segir Örvar. Málið sé gríðarlegur harmleikur og áfall fyrir starfsmenn sem hafi þekkt hinn látna persónulega.
Vissu ekki af kvöðum um svalir
Fram kemur í svörum Örvars að Alva Capital hafi keypt fasteignina að Stangarhyl 3 og 3A þann 1. júlí á síðasta ári. Þeim kaupum hafi fylgt 32 leigusamningar sem í gildi voru. Stærð húsnæðisins sé 1.505 fermetrar og var ætlun Alva Capital að breyta húsnæðinu í hótelíbúðir og vinnustofur.
Var þetta starfsfólk á ykkar vegum sem bjó þarna?
„Já, það bjuggu fimm manns í íbúðinni sem brann að Stangarhyl 3. Það var einn maður gestkomandi hjá þeim þessa örlaga nótt,“ skrifar Örvar í svari til fréttastofu.
Hann segir að samkvæmt vitneskju fyrirtækisins búi um fimmtíu manns í Stangarhyl 3A. Eldvarnarveggur sé á milli húsanna sem hafi komið í veg fyrir að eldur breiddist út. Hann segir að ekki liggi fyrir að svo stöddu hve mikið tjón hafi hlotist af eldinum. Öðrum íbúum hafi verið útvegað hótelherbergi.
Hvernig var eldvörnum háttað?
„Slökkviliðið gerði úttekt á húsnæðinu stuttu eftir að við tókum það yfir og gerði nokkrar athugasemdir sem voru lagaðar. Brunaviðvörunarkerfi voru síðast tekin út 25. október af Öryggismiðstöðinni og virkuðu þau öll sem betur fer.“
Áður hefur komið fram að fyrri eigendur hússins hafi fengið samþykkta umsókn árið 2002 um að breyta efri hæð hússins í húsvarðaíbúð, með því skilyrði að byggðar yrðu svalir við húsið. Þær voru hins vegar aldrei byggðar.
„Við kaupin á fasteignunum vissum við ekki af þessari kvöð og varð hún okkur fyrst ljós eftir brunann enda kom hún ekki fram í kaupsamningi.“
Ringulreið á vettvangi
Áður hefur verið greint frá því að lögregla rannsaki hvort kviknað hafi í út frá þurrkara í eldhúsi hússins. Altjón varð á efri hæð hússins í brunanum en húsið var ekki samþykkt íbúðarhúsnæði. Deildarstjóri á aðgerðarsviði slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins sagði í samtali við Vísi að talsverð ringulreið hafi skapast á vettvangi þegar slökkviliðið bar að garði, þar sem ekki hafi verið ljóst hversu margir væru inni í húsinu.
Þrír voru fluttir á slysadeild í kjölfar brunans. Einn slasaðist alvarlega og lá þungt haldinn á sjúkrahúsi þar til hann lést nokkrum dögum síðar.