Halla Bergþóra Björnsdóttir, lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu, vildi ekki tjá sig um það í hádegisfréttum RÚV hvort starfsmennirnir væru farnir í leyfi. Hún sagðist þó líta málið alvarlegum augum. Starfsmennirnir njóti persónuverndar á meðan málið sé til rannsóknar.
Verulega vont mál
Málið var rætt í Vikulokum á Rás 1 í morgun. Þar voru gestir Sunnu Valgerðardóttur þau Helga Vala Helgadóttir, lögmaður, Stefán Pálsson, varaborgarfulltrúi og Sigurður Örn Hilmarsson formaður Lögmannafélags Íslands
Stefán Pálsson sagði það gleðilegt að væri verið að fara með fólk í fræðsluferðir til Auschwitz en að um væri að ræða „botnlaust dómgreindarleysi og vitleysisgang“ af hálfu starfskvenna lögreglunnar. Hann sagði sér fallast hendur.

Sigurður Örn Hilmarsson, formaður Lögmannafélags Íslands, sagði þetta kjánaskap og þarna hefðu verið teknar heimskulegar ákvarðanir. Málið væri óheppilegt og það væri betra ef þetta hefði ekki gerst.
Helga Vala Helgadóttir, lögmaður og fyrrverandi þingkona Samfylkingar, sagði málið ferlega ömurlegt.
„Þær eru í vinnuferð. Þetta er lögreglan og þær eru ákveðnar reglur.“
Hún sagði mikilvægt að vita hvaða einstaklingur það var sem var keyptur, hver bakgrunnur hans er og sagði mjög líklegt væri að einstaklingurinn væri þolandi mansals.
„Mér finnst þetta bara vont. Maður flissar við morgunverðarborðið þegar maður sér þessa frétt af því þetta er svo vandræðalegt. En svo er þetta bara alveg ömurlegt og hrikalega vont,“ sagði Helga Vala í Vikulokunum.
Keyptu sér limmósínu og fatafellu
Fram kom í frétt Vísis um málið í gær að vinnuferðin var farin í síðasta mánuði. Þegar henni lauk varð hópur starfsmanna eftir. Samkvæmt heimildum fréttastofu var það yfir helgina sem fylgdi sem kvenkyns starfsmenn ákærusviðs skelltu sér út á lífið, leigðu limmósínu og keyptu þjónustu karlkyns fatafellu.
Í frétt Heimildarinnar í gær kom svo fram að myndum af því var svo deilt í lokaðan hóp á Snapchat.