Frá þessu segir í tilkynningu frá Markaðsstofu Akureyrar. Þar segir að sætanýting hafi verið samkvæmt áætlunum og lendingar á Akureyrarflugvelli gengið mjög vel.
Haft er eftir Arnheiði Jóhannsdóttur, framkvæmdastjóra Markaðsstofu Norðurlands, að áframhaldandi flug easyJet næsta vetur til Akureyrarflugvallar frá Gatwick í London sé mikið fagnaðarefni.
„Bókanir á fluginu sem hófst í lok október hafa farið vel af stað og nýting verið í takt við áætlanir. Flug beint norður býður nýjan valkost í flugi til Íslands og skapar tækifæri til uppbyggingar á vetrarferðaþjónustu. Þessi þróun er í takti við áherslur um dreifingu ferðamanna um landið og ánægjulegt að margra ára samstarf um uppbyggingu millilandaflugs sé að skila þeim árangri að easyJet leggi nú af stað með áætlun næsta vetrar, “ segir Arnheiður.
Þá er haft eftir Sigrúnu Björk Jakobsdóttur, framkvæmdastjóra Isavia innanlandsflugvalla, að það sé mikið ánægjuefni að easyJet hafi nú þegar hafið sölu á flugferðum milli Akureyrarflugvallar og London Gatwick fyrir næsta vetur,
„Það verður afskaplega gaman að taka á móti easyJet og öðrum flugfélögum á Akureyrarflugvelli á næsta ári. Viðbyggingin við flugstöðina verður tilbúin í júlí og við enn betur í stakk búin til að þjónusta flugfélögin og farþega þeirra,“ segir Sigrún Björk.