Íris Ásmundardóttir, Berglind Rafnsdóttir, Þyrí Huld Árnadóttir og Aðalheiður Halldórsdóttir dönsuðu í Ásmundarsal á laugardag á viðburðinum Hringrás x Gasa.Aldís Pálsdóttir
Hópur listakvenna kom saman í Ásmundarsal síðastliðinn laugardag á listræna dansviðburðinum Hringrás x Gasa.
Margverðlaunaði dansarinn og danshöfundurinn Þyri Huld Árnadóttir stóð fyrir viðburðinum ásamt hópi dansara en þær dönsuðu spuna á staðnum út frá tilfinningum og líðan. Helga Lilja Magnúsdóttir hönnuður hjá Helicopter hannaði bol út frá ljósmynd Sögu Sig og tónlistin var í höndum Urðar Hákonardóttur.
Í færslu á Facebook þakkar Þyri öllum þeim sem komu og segist meðal annars óendanlega þakklát öllum ofurkonunum sem komu að verkefninu.
Allur ágóði rennur til kvenna á Gasa-svæðinu en samkvæmt heilbrigðisráðuneytinu á Gasa hefur stríðið kostað meira en 18.700 manns lífið, aðallega konur og börn.
Hér má sjá myndir af viðburðinum:
Berglind Rafnsdóttir og Íris Ásmundardóttir dönsuðu út frá tilfinningum sínum. Aldís PálsdóttirPattra Sriyanonge & Andrea Magnúsdóttir.Aldís PálsdóttirÞyrí Huld Árnadóttir dansari og danshöfundur á ekki erfitt með að tjá tilfinningar og líðan í gegnum sporin. Aldís PálsdóttirDanshópurinn Hringrás. Íris Ásmundardóttir í forgrunni ásamt Berglindi Rafnsdóttur. Ljósmyndarinn Saga Sig var meðal gesta en ljósmynd eftir hana prýðir bolinn sem dansararnir klæðast. Aldís PálsdóttirÓlíkir listmiðlar sameinuðust í Ásmundarsal á laugardag. Til vinstri fyrir miðju má sjá Urði Hákonardóttur sem sá um tónlistina fyrir verkið. Aldís PálsdóttirMargt var um manninn í Ásmundarsal.Aldís PálsdóttirDansararnir klæddust allar bol sem hannaður er af Helgu Helicopter með mynd eftir ljósmyndarann Sögu Sig. Aldís PálsdóttirKlara Rún Ragnarsdóttir & Elísabet Gunnarsdóttir. Aldís PálsdóttirHringrás x Gasa var spunaverk en dansararnir höfðu ekki æft saman fyrir sýninguna heldur fylgdu þær tilfinningum, líðan og flæði á staðnum. Aldís PálsdóttirAndrean dansari og meðlimur í Hatara ásamt Auði og Kristínu Maríu.Aldís PálsdóttirBolurinn sem er í sölu til styrktar UN Women og starfi þeirra til hjálpar konum í Gasa.Aldís PálsdóttirPlötusnúðarnir Gunnþórunn Jónsdóttir & Sóley Kristjánsdóttir. Aldís PálsdóttirKatrin Fjeldsted, móðir Helgu Lilju fatahönnuðar, og Lovísa Fjeldsted frænka hennar.Aldís PálsdóttirNoorina Khalikyar ásamt vinkonu, Eva Katrín, Ingibjörg Sólrún og Rebekka.Aldís PálsdóttirHildur Ólafsdóttir, Neil, Sigrún, Teitur, Hrafnkell og Þórunn. Aldís PálsdóttirDansinn dunaði.Aldís PálsdóttirSumir gestir dönsuðu með. Aldís Pálsdóttir Aðalheiður og Þyrí í flæðandi flækju.Aldís Pálsdóttir
Hinn margverðlaunaði dansari og danshöfundur Þyri Huld Árnadóttir ásamt hópi dansara stendur fyrir dansviðburðinum Hringrás x Gasa sem haldinn verður í Ásmundarsal klukkan 16:00 á morgun.