Húsið stendur við Austurveg 29 en það eru hjónin Sólveig Ósk Hallgrímsdóttir og Gísli Þór Guðmundsson, sem eiga þetta glæsilega jólahús, sem hefur oftar en ekki verið valið fallegasta húsið í Árborg um jólin.
„Við byrjum alltaf snemma og erum svona hálfan dag að þessu, þetta tekur nú ekkert langan tíma. Húsið vekur alltaf mikla athygli enda búum við hér við þjóðveg númer eitt, það eru allir að taka myndir og svona. Eina nóttina voru til dæmis útlendingar hérna í rútu, sem stoppuðu og þeir voru að taka myndir, það er bara gaman af þessu,” segir Sólveig Ósk.
Sólveig eða Lólló eins og hún er alltaf kölluð er með hárgreiðslustofuna sína, sem heitir Mensý á neðri hæð hússins og þar fær hún mikið hrós frá viðskiptavinum sínum hvað húsið sé fallega skreytt. Þá fær hún oft gesti í heimsókn, sem vilja fá að vita allt það helsta um húsið og jólaskreytingarnar.
„6. janúar slekk ég á öllu, við erum alltaf alveg ákveðin í því.”
Og þarftu ekki að raða þessu vel upp og hafa þetta klárt fyrir næstu jól?
„Jú, jú, allt skipulagt annars finnur maður ekki neitt, veit ekkert hvar neitt er en þetta er allt á sínum stað,” segir Lóló og hlær.

Og Lóló segist vera mikið jólabarn og hafi alltaf verið.
„Já, já og ég er að vona að við breytum Selfoss í jólabæ, ég vil bara hafa þetta jólabæinn flotta, það væri bara geggjað,” segir Lóló kampakát.