Varð valdur að banaslysi vegna þreytu Árni Sæberg skrifar 22. desember 2023 10:11 Umfangsmiklar aðgerðir viðbragðsaðila voru á vettvangi slyssins. Vísir Karlmaður hefur verið dæmdur til eins mánaðar skilorðsbundinnar fangelsisvistar fyrir að hafa valdið banaslysi við Hítará í sumar af stórfelldu gáleysi. Slysið var talið mega rekja til þess að maðurinn hafi verið ófær um að stjórna bifreið vegna þreytu.
Þetta segir í dómi Héraðsdóms Vesturlands, sem kveðinn var upp þann 12. desember. Þar segir að maðurinn hafi verið ákærður fyrir hegningar-og umferðarlagabrot með því að hafa, stuttu eftir hádegi mánudaginn 17. júlí 2023, ekið bifreið um Snæfellsnesveg í norðurátt, skammt norðan við Hítará í Borgarbyggð, án nægilegs tillits og varúðar og eigi fær um að stjórna ökutækinu örugglega vegna þreytu, sem varð til þess að ökutækið fór yfir á akrein fyrir umferð á móti, og árekstur varð við bifreið, sem var ekið um Snæfellsnesveg í suðurátt. Afleiðingar slyssins hafi verið að kona, sem var farþegi í hinni bifreiðinni og slóvenskur ríkisborgari, lést samstundis. Tveir aðrir slóvenskir ríkisborgarar, þar á meðal eiginmaður hinnar látnu, hafi slasast. Þá hafi tveir bandarískir farþegar ökumannsins einnig slasast. Sagði líklegast að hann hafi sofnað Í niðurstöðukafla dómsins segir að fyrir dómi hafi maðurinn lýst því svo að hann teldi líklegt að hann hafi sofnað við akstur umrætt sinn, en vitni á vettvangi hafi einnig greint frá því að eiginkona hans hafi á vettvangi einnig talið það líklega skýringu. Slysið varð norðan við Hítará.vegagerðin Fyrir liggi og sé óumdeilt að bifreiðinni hafi verið ekið yfir á rangan vegarhelming og í veg fyrir bifreið með þeim afleiðingum sem greinir í ákæru. Fyrir dómi hafi eiginkona mannsins, sem hafi verið með athyglina á farsíma sínum, sagst þó ekki hafa tekið eftir neinu óvenjulegu skömmu fyrir áreksturinn. Af framburði hennar megi þannig draga þá ályktun að engar hreyfingar bifreiðarinnar eða annað hafi bent til þess að hætta væri á ferðum. Það bendi mjög eindregið til þess að ákærði hafi misst einbeitingu við aksturinn umrætt sinn, mjög líklega vegna þess að hann hafi sofnað undir stýri. Áreksturinn hefði ekki orðið ef maðurinn hefði sýnt af sér varúð Á meðal gagna málsins séu ljósmyndir af vettvangi. Samkvæmt þeim gögnum hafi tvær akreinar verið á Snæfellsnesvegi þar sem bílarnir rákust saman, ein ætluð fyrir umferð í hvora átt og þær aðgreindar með yfirborðsmerkingum. Akstursstefna sé merkt með heilli línu þar sem framúrakstur er óheimill. Einnig sjáist á myndum af vettvangi að vegöxlin er ekki brött á þessu svæði og ekki séu sjáanlegir skurðir í námunda við veginn. Aðstæður að öðru leyti, þar með talið veðurfarslegar, hafi verið með ágætum og ekkert þá sem bendi til þess að slysið hafi mátt rekja til bilunar eða utanaðkomandi aðstæðna sem maðurinn yrði ekki látinn bera ábyrgð á og enda ekki byggt á neinu slíku. Af rannsóknargögnum málsins og framburði fyrir dómi telji dómurinn þannig ljóst að ef athygli mannsins hefði verið í lagi og hann sýnt af sér nægjanlega varúð miðað við aðstæður hefði umræddur árekstur ekki orðið. Sannað sé því að það var aksturslag mannsins sem olli slysinu. Ófær um að stjórna bifreiðinni vegna þreytu Engin efni séu til annars en að draga þá ályktun að þetta hafi gerst vegna þess að maðurinn hafi ekki verið í nægjanlega góðu líkamlegu eða andlegu ástandi til að aka bifreiðinni umrætt sinn, en enginn annar en maðurinn gæti eins og atvikum var háttað metið það ástand. Mat dómsins sé því að maðurinn hafi gerst sekur um stórkostlegt gáleysi við akstur bifreiðarinnar í umrætt sinn og verið ófær um að stjórna henni örugglega og af þeirri tillitssemi og varúð sem áskilin er lögum samkvæmt, með þeim afleiðingum sem í ákæru greinir. Umrætt slys verði því rakið til þreytu eða annars slíks ástands mannsins sem hafi valdið því að hann hafi sofnað við aksturinn eða með öðrum hætti misst athyglina af akstrinum þegar hann mætti umræddri bifreið, en við slíkar aðstæður sé ljóst að sýna þarf ýtrustu varúð sem augljóst verði að telja hlutrænt séð að maðurinn hafi ekki sýnt umrætt sinn í raun, þá burtséð frá því hverju var um að kenna. Með vísan til sönnunarmats í sambærilegum málum og framangreinds verði maðurinn því sakfelldur fyrir brot gegn almennum hegningarlögum og umferðarlögum. Refsing hans sé hæfilega metin eins mánaðar skilorðsbundin fangelsisvist og sex mánaða svipting ökuréttinda frá uppkvaðningu dóms. Bótakrafa lækkuð um níutíu prósent Fyrir hönd eiginmanns farþegans sem lést var gerð krafa um miskabætur að fjárhæð tíu milljónir króna. Í umfjöllun dómsins um miskabótakröfuna segir að við mat á hæfilegum miskabótum vegi þyngst að maðurinn missti eiginkonu sína í slysinu. Á hinn bóginn verði að líta til þess að engum gögnum sé til að dreifa um miskatjón mannsins þótt við blasi út frá atvikum málsins að hann hafi orðið fyrir miklu áfalli. Þá beri gögn málsins með sér að maðurinn hafi sjálfur ekki orðið fyrir miklum líkamlegum áverkum í slysinu, en ekkert læknisvottorð liggi fyrir um slíka áverka í málinu. Að framangreindu gættu og með vísan til atvika máls og þeirrar háttsemi sem ökumaðurinn gerðist sekur um og dómafordæma á sviðinu þyki miskabætur til eiginmannsins úr hendi ökumannsins vera hæfilega ákveðnar ein milljón króna. Þá gerðu tveir aðrir farþegar í bifreiðinni, sem ekið var framan á, miskabótakröfu upp á fimm milljónir króna hvor. Dómurinn taldi bætur til handa þeirra hæfilega metnar 250 þúsund krónur hvorum. Loks var manninum gert að greiða málvarnarlaun verjanda síns, 1,2 milljónir króna og þóknun skipaðs réttargæslumanns allra brotaþola, 700 þúsund krónur. Fréttin hefur verið leiðrétt. Upphaflega var ritað að maðurinn hafi hlotið sex mánaða skilorðsbundna fangelsisrefsingu. Rétt er að hann hlaut eins mánaðar fangelsisvist en sex mánaða sviptingu ökuréttinda.
Dómsmál Umferðaröryggi Samgönguslys Borgarbyggð Mest lesið „Þeir liggja hérna eins og hráviði út um allt“ Innlent Ásthildur Lóa setur húsið umdeilda á sölu Innlent Ræddi við foreldra og hætta við miklar hækkanir Innlent Móðirin hafi þurft að sárbæna hann til að hitta barnið á spítala Innlent Segjast hafa uppgötvað nýjan lit sem ekki hefur sést áður Erlent Viðbragð lögreglu og sjúkraflutningamanna í nágrenni Selfoss Innlent Vance átti í skoðanaskiptum við hægri hönd páfans Erlent „Þetta er orðið pínu þreytt, tveir bílar á sex dögum“ Innlent Bjóst ekki við að ríkisstjórnin héldi meirihluta Innlent Unglingur stakk óboðinn gest í bakið til að verja fjölskyldumeðlim Innlent Fleiri fréttir Vanþekking ráðherra sé áhyggjuefni Margar fjölskyldur fastar í fátækt svo árum skiptir Ásthildur Lóa setur húsið umdeilda á sölu Gagnrýnir dómsmálaráðherra fyrir að fara með rangt mál um dvalarleyfi Trump-stjórnin virðist ekki hafa neitt plan Skrítið ef ríkið hefur ekki áhuga á Háholti Maðurinn er laus úr haldi „Við megum mótmæla því að verið sé að drepa saklaust fólk“ Ræddi við foreldra og hætta við miklar hækkanir Einn í haldi lögreglu vegna konu með skerta meðvitund Falla frá gjaldskrárhækkunum og árásir á tímum vopnahlés Bjóst ekki við að ríkisstjórnin héldi meirihluta Viðbragð lögreglu og sjúkraflutningamanna í nágrenni Selfoss Vestfjarðaleiðin verði Hringvegur númer tvö Ferill fyrrum forsætisráðherra og verðlaunaður sagnfræðingur í Sprengisandi Rólegheitaveður á páskadag Ökumaður undir aldri í bílaeltingarleik við lögreglu Mótmæla brottvísun Oscars Gagnrýnir brattar hækkanir: „Þetta er bara dapurlegt“ Eitthvað búi að baki „meira en þrá hans eftir friði“ Engin tengsl milli þolenda og gerenda Tortryggni í garð Rússa og ungmennaráð sem fékk ekkert að segja Móðirin hafi þurft að sárbæna hann til að hitta barnið á spítala Handtekinn á Húsavík með tölvert magn fíkniefna Bora tilraunaholu til að framleiða heitt vatn á höfuðborgarsvæðinu „Það er eitthvað við það að vera hérna“ Koma strandaglópunum heim í kvöld Áhyggjuefni að brotaþolar treysti ekki dómstólum Unglingur stakk óboðinn gest í bakið til að verja fjölskyldumeðlim Fólskuleg líkamsárás og strandaglópar í suðri Sjá meira