Rafíþróttir

Ljósleiðaradeildin í beinni: Fyrsta um­ferð eftir jól er í kvöld

Snorri Már Vagnsson skrifar
Tvær viðureignir fara fram í kvöld
Tvær viðureignir fara fram í kvöld

Ljósleiðaradeildin hefst að nýju í kvöld eftir jólafrí. Komið er að tólftu umferð, en spilaðar verða átján umferðir alls á tímabilinu.

Fjögur lið mæta til leiks í kvöld, en Young Prodigies og Breiðablik mætast í fyrsta leik kl. 19:30. Blikar eru í næstneðsta sæti deildarinnar með átta stig en Young Prodigies eru í því fimmta með tólf stig. 

Seinni leikur kvöldsins hefst svo kl. 20:30 þegar Ármann og ÍBV mætast. ÍBV hefur ekki enn fundið sigurleik og eru því með núll stig en Ármann eru í þriðja sæti deildarinnar með 14 stig.

Fylgjast má með leikjunum í beinni útsendingu á Stöð 2 Esports eða í spilaranum hér fyrir neðan.






×