Mike Jeffries var framkvæmdastjóri Abercrombie & Fitch í yfir tvo áratugi, frá 1992 til 2014. Fjöldi ungra karlmanna hefur kært Jeffries og maka hans, Matthew Smith, til lögreglu. Þeir eru grunaðir um að hafa nýtt valdastöðu sína og lofað ungum karlmönnum, sem vildu ólmir sitja fyrir tískumerkið, gulli og grænum skógum.
Þess í stað hafi þeir gerst sekir um mansal með því að hafa kynferðislega misnotað, og leyft öðrum að kynferðislega misnota, unga menn á viðburðum sem þeir héldu bæði á heimili sínu í New York og víðs vegar um heim. FBI telur að Jeffries og Smith hafi misnotað meira en hundrað unga menn.

Meint kynferðisbrot Jeffries og Smith komu upp á yfirborðið þegar átta karlmenn stigu fram í heimildaþáttaröð og hlaðvarpi hjá breska ríkisútvarpinu. Allir þeirra sögðust hafa verið viðstaddir viðburði Jeffries í borgum á borð við Lundúnir, París og Marrakesh á árunum 2009 til 2015.
Þeir sökuðu Jeffries og Smith um að hafa sjálfir leitað á þá kynferðislega eða fyrirskipað þeim að stunda kynlíf hver með öðrum. Rannsókn BBC leiddi í ljós að viðburðirnir og kynferðisbrotin voru vel skipulögð og fjöldi fólks kom að því að útvega strákana.
Einn þeirra, James Jacobsson sem nú er sjötugur, neitaði því staðfastlega í viðtali við BBC að hafa nokkuð rangt gert og sagði ungu mennina hafa sótt þessa viðburði af eigin sjálfsdáðum og með mikilli tilhlökkun.
Abercrombie & Fitch hefur fordæmt hegðun Jeffries og segir í tilkynningu frá fyrirtækinu að því sé „misboðið“ að hann hafi komið svona fram. Fyrirtækið hefur ákveðið að minnka eftirlaunagreiðslur til Jeffries til muna, eða um eina milljón Bandaríkjadala á ári, sem nemur um 138 milljónum króna.