Þar segir að með samkomulaginu sé fyrirtækinu úthlutað svæði við Litlu Laxá, í miðbæ Flúða, til uppbyggingar fjölbreyttrar ferðaþjónustu. Á svæðinu var áður garðyrkjustöð og hyggjast forsvarsmenn Greenhouse spa nýta sér þau gróðurhús sem eru á svæðinu í rekstrinum en öll hönnun miðar að því að gestir geti notið þess að heimsækja gróðurhús og átt í þeim afslappandi gæðastundir án tillits til veðurs.

Að sögn Torfa G. Yngvasonar, forsvarsmanns Greenhouse Spa, mun fjöldi gufubaða og heitra lauga einkenna staðinn en einnig er gert ráð fyrir veitingahúsi, ferðamannaverslun, beint frá býli verslun og önnur ferðatengd þjónusta.
Gert er ráð fyrir að fyrstu gestir geti notið þess að heimsækja Ylju, sem er vinnuheiti verkefnisins, sumarið 2025. Fyrirtækið hefur einnig fengið úthlutað lóð fyrir um 60 herbergja hótel á sama stað og mun uppbygging þessara tveggja verkefna fylgjast að.
Þá segir í tilkynningu að Jón Bjarnason, oddviti Hrunamannahrepps, sé ánægður með að samkomulag hafi náðst um þetta verkefni og fagnar því að á reitnum öllum rísi eftirsóknarverð og aðlaðandi starfsemi sem styrkja mun Hrunamannahrepp og Flúðir sem eftirsóknarverðan áfangastað ferðamanna og ekki síður sem eftirsóknarverðan búsetukost til framtíðar.