Íslenskur toppfótbolti er nafnið á hagsmunasamtökum knattspyrnufélaga í efstu deildum Íslands. Þau eiga einn fulltrúa í stjórn KSÍ og er það jafnframt eini stjórnarmaður KSÍ sem má vera í ólaunuðu starfi eða stöðu hjá einhverju af aðildarfélögum sambandsins.
Stjórn KSÍ leggur til að þessu verði breytt þannig að allir fulltrúar í stjórn KSÍ séu óháðir aðildarfélögum KSÍ. Það er að segja að þeir séu ekki í launuðu starfi, stjórn eða ráði hjá neinu aðildarfélagi.
Í rökstuðningi með tillögu stjórnarinnar segir meðal annars að það sé ekki í samræmi við lýðræðislega og góða stjórnarhætti að undanskilja einn aðila í stjórn KSÍ frá hæfisskilyrðum, og að engin sýnileg, gild ástæða sé fyrir því að fulltrúi ÍTF sé undanskilinn.
ÍTF vill leyfa öllu stjórnarfólki að tengjast einnig aðildarfélagi
ÍTF leggur hins vegar til að lögunum verði breytt þannig að allt stjórnarfólk KSÍ megi samhliða þeirri stjórnarsetu sitja í stjórnum eða vera formaður ráða hjá einhverju af aðildarfélögum sambandsins. Þeir megi þó áfram ekki vera í launuðu starfi hjá aðildarfélagi.
Í rökstuðningi segir stjórn ÍTF að eins og lögin séu núna þá geti það þýtt að reynslumestu aðilarnir séu ekki kjörgengir til að taka þátt í að stjórna knattspyrnuhreyfingunni á Íslandi. Afar lítil hætta sé á hagsmunaárekstrum því málefni einstakra félaga séu sjaldnast til umræðu eða afgreiðslu þar.
Ársþing KSÍ fer fram 24. febrúar næstkomandi. Kosið verður í nýja stjórn og ljóst er að þrír sækjast eftir sæti formanns sambandsins, þeir Guðni Bergsson, Vignir Már Þormóðsson og Þorvaldur Örlygsson.