Aðalmeðferð í hryðjuverkamálinu svokallaða hófst á fimmtudag og hélt áfram í gær. Tveir menn, Sindri Snær Birgisson og Ísidór Nathansson, eru þar ákærðir fyrir vopnalagabrot en Sindri er einnig ákærður fyrir tilraun til hryðjuverka. Ísidór er ákærður fyrir hlutdeild að tilraunabrotinu. Fyrir dómi í gær báru vitni, meðal annars kærasta Sindra og faðir hans, sem og sambýliskona Ísidórs til sjö ára. Þá komu vopnasalar, tæknifræðingur og geðlæknir fyrir dóminn.
Sveinn Andri Sveinsson er verjandi Sindra.
Sveinn Andri segir að þrennt hafi staðið upp í aðalmeðferðinni í vikunni. Í fyrsta lagi hafi komið skýrlega fram hjá fulltrúa ríkislögreglustjóra að þegar Sindri Snær og Ísidór voru handteknir þá hafi það ekki verið vegna yfirvofandi hryðjuverkahættu heldur vegna rannsóknarhagsmuna.
Í öðru lagi liggi fyrir að sérfræðingar um byssur hafi kveðið upp úr með það ekki væri um árásarriffla að ræða í málinu.
Í þriðja lagi hafi frásögn geðlæknis, sem var matsmaður í málinu, verið mjög afgerandi. Hann hafi metið frásagnir mannanna sem galgopalega orðræðu, þannig að á bakvið hana væri ekkert og að þeir væru vitahættulausir.
Lögreglan hefði betur fylgst með mönnunum lengur
Sveinn Andri segir að samkvæmt alþjóðlegum stöðlum sé mönnum sem grunaðir eru um skipulagningu hryðjaverka skipt í tvo hópa, annars vegar þá sem stöðva þarf strax vegna yfirvofandi hættu og hins vegar þá sem fylgjast þarf með, vegna hugsanlegrar hættu.
„Í allra allra mesta lagi væri hægt að fullyrða það að þeir féllu inn í þá kategóríu, út af þessum samtölum þeirra, að það þyrfti að hafa auga með þeim. Það er það sem hefði átt að gera í málinu. Hefði lögreglan bara haft auga með þeim, fylgst með þeim, þá hefðu þeir áttað sig á því að það var ekkert þarna að gerast og málið hefði dáið. Það hefði verið hin farsæla ending á þessu máli í stað þess að fara í þetta frumhlaup að handtaka þá að ástæðulausu.“
Áhrifin mikil en er alltaf bjartsýnn
Sveinn Andri segir að hryðjuverkamálið sé búið að hafa stórkostleg áhrif á allt líf þeirra Sindra Snæs og Ísidórs. Líf þeirra hafi algjörlega verið sett úr skorðum frá því að það kom upp þann 22. september árið 2022. „Það verður í raun erfitt að bæta það.“
Hann segist þó alltaf vera bjartsýnn. „Í þessu máli vonar maður alltaf að sannleikurinn og réttlætið hafi sigur að lokum og að þeir verði sýknaðir.“