Skoðun

Garða­bær og á­sýnd spillingar

Harpa Þorsteinsdóttir og Þorbjörg Þorvaldsdóttir skrifa

Á bæjarstjórnarfundi 1. febrúar síðastliðinn samþykkti bæjarstjórn Garðabæjar að ráða Lúðvík Örn Steinarsson í stöðu sviðsstjóra fjármála og stjórnsýslu. Hann verður því einn æðsti embættismaður sveitarfélagsins. Um ráðninguna hefur verið fjallað í fjölmiðlum, en kannski sérstaklega þá staðreynd að minnihlutinn í heild sinni taldi sig ekki geta samþykkt hana.

Við, bæjarfulltrúar Garðabæjarlistans, höfum farið varlega í að draga hæfni þess einstaklings sem um ræðir í efa. Hann mun að öllum líkindum standa sig vel í starfi, enda var hann metinn hæfur. Það sem er okkur hins vegar hjartans mál er að traust íbúa til stjórnsýslunnar sé með hæsta móti, og enn frekar að það sé hafið yfir allan vafa að pólitískir hagsmunir ráði ekki för við ráðningu í eitt æðsta embætti Garðabæjar.

Í þessu tilviki kom það í hlut formanns bæjarráðs, þeirrar sem skipar 2. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Garðabæ, að meta einstakling sem gegnir trúnaðarstörfum fyrir Sjálfstæðisflokkinn, er formaður fulltrúaráðs Sjálfstæðisflokksins, situr fyrir hönd Sjálfstæðisflokks í skipulagsnefnd ásamt því að vera mjög tengdur bæjarstjóra.

Bæjarráð var aldrei upplýst formlega um það hver þessi tengsl voru. Á bæjarstjórnarfundi kom svo í ljós að gert var ráð fyrir því að allir bæjarfulltrúar þekktu alla á umsækjendalistanum eða myndu gera sér far um að afla upplýsinga um þau á vefnum, samfélagsmiðlum eða eftir öðrum leiðum.

Það er algjörlega ljóst að pólitískir hagsmunir og tengingar geta skapað ásýnd sem grefur undan trausti á einstaklingi, starfsgrein eða ferli. Við teljum að hægt hefði verið að draga úr átökum með sannprófun eða mati þriðja aðila og auknu gagnsæi á síðasta þriðjungi ráðningarferlisins, t.d. að fjölskipaðri nefnd yrði falið að velja á milli tveggja jafnhæfra einstaklinga. Í það minnsta hefði okkur þótt viðeigandi að formaður bæjarráðs hefði borið ábyrgð á því að greina að fullu frá þeim hagsmunum sem gætu orkað tvímælis við framkvæmd ráðningar.

Við ráðninguna og framkvæmdina alla var augljóslega litið fram hjá því hvernig þetta lítur út fyrir hinn almenna íbúa, eða að minnsta kosti þá íbúa sem eru ekki inni í Sjálfstæðisbúbblunni í Garðabæ. Við trúum því alveg að sú sem stóð frammi fyrir að velja á milli tveggja jafnhæfra einstaklinga hafi talið sig geta sinnt skyldum sínum á hlutlausan hátt. Það kemur því (miður) í okkar hlut að benda á hið augljósa: Hér eru fyrir hendi aðstæður sem eru fallnar til þess að draga óhlutdrægni formanns bæjarráðs í efa. Í besta falli er hér um að ræða ásýnd spillingar.

Eitt er þó skýrt og það er skortur fulltrúa Sjálfstæðisflokksins á þeim eiginleika að geta sett sig í spor fólks sem tilheyrir ekki valdaklíku bæjarins. Það endurspeglast í viðmóti þeirra og viðbrögðum við gagnrýni á vandræðalegu verklagi meirihlutans á lokametrunum við þessa mikilvægu ráðningu. Svona mál verður að vinna þannig að traust fólks til bæjarins aukist, en ekki öfugt. Garðbæingar eiga betra skilið.

Höfundar eru bæjarfulltrúar Garðabæjarlistans.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×