Möðkum rigndi yfir farþega og vélinni snúið við Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 15. febrúar 2024 13:59 Forsvarsmenn flugfélagsins ákváðu að þrífa vélina sem um ræðir. EPA-EFE/JIM LO SCALZO Farþegaflugvél bandaríska flugfélagsins Delta sem var á leið til Detroit í Bandaríkjunum frá Amsterdam á þriðjudag var snúið við í snarhasti eftir að möðkum tók að rigna yfir farþega.
Í umfjöllun Guardian segir að í ljós hafi komið að einn farþega hafi haft með sér um borð rotinn fisk. Fiskurinn var í handfarangri mannsins sem hann kom fyrir í handfarangursrými vélarinnar yfir hausamótum farþega. Rætt er við Philip Schotte, hollenskan mann sem búsettur er í Iowa í Bandaríkjunum, sem segist hafa orðið vitni af því hvernig maðkar féllu úr handfarangursými og yfir konu sem sat í sakleysi sínu í sæti sínu. „Ég veit eiginlega ekki hvað ég hugsaði. Ég var að reyna að melta þetta, en viðbjóður er eitthvað sem augljóslega kom upp í hugann,“ segir Schotte. Hann segir flugþjóna vélarinnar hafa verið fljóta að komast að því hvaðan maðkarnir komu. Þeir hafi fundið hinn úldna fisk umvafinn dagblaðapappír. Fisknum var hent í kjölfarið og farþegum tilkynnt að vélinni yrði snúið við aftur til Amsterdam. Tveir tímar voru liðnir af átta tíma löngu flugi þegar henni var snúið við. Fram kemur í umfjöllun Guardian að Delta hafi beðið farþega sína afsökunar vegna málsins. Vélinni hafi verið snúið við vegna illa pakkaðs handfarangurs. Öllum farþegum hafi verið fundið nýtt flug en flugvélin var þrifin hátt og lágt vegna málsins. Þá hefur miðillinn eftir einum farþega að þeir hafi fengið afsláttarkjör í sárabætur, hótelgistingu og matarmiða vegna málsins.
Fréttir af flugi Bandaríkin Dýr Mest lesið Vaktin: Robert Francis Prevost er nýr páfi Erlent Lá alblóðugur á gangstétt eftir að hafa komist undan árás æskuvinarins Innlent Þungt hugsi og í áfalli Innlent Hafi verið rangkynjuð oftar en hún geti talið og segir transfóbíu bitna á öllum Innlent Samþykktu Trump-samninginn einróma Erlent Norðmenn undirbúi sig undir möguleg stríðsátök Erlent Vantraust á framkvæmdastjóra Félagsbústaða talið alvarlegt Innlent Hvað vitum við um Leó páfa? Erlent „Rotnir starfshættir og ríkisrekið ofbeldi gegn borgurunum“ Innlent „Þvílík spenna og þvílíkur heiður fyrir landið okkar“ Erlent Fleiri fréttir Hvað vitum við um Leó páfa? Norðmenn undirbúi sig undir möguleg stríðsátök „Þvílík spenna og þvílíkur heiður fyrir landið okkar“ Bíða með að stimpla AfD sem öfgasamtök Margrét Þórhildur lögð inn á sjúkrahús Samþykktu Trump-samninginn einróma Takmörkuð eftirspurn eftir ríkisstjórn með flokki Farage Gera enn árásir með drónum og eldflaugum Reyndi til hins síðasta að koma skikki á fjármál Vatíkansins Einhliða vopnahlé Rússa hafið Vesturlönd þurfa að borga milljarðatjón af árás Rússa á Tsjernobyl Heimila hernum að hefna fyrir árásirnar í gær Vaktin: Robert Francis Prevost er nýr páfi Herþota hrapaði til jarðar í Finnlandi Auka njósnir og eftirlit á Grænlandi Misstu aðra herþotu í sjóinn Segjast hafa skotið niður indverskar herþotur Indland gerir árás á Pakistan Trump um kaupin á Kanada: „Aldrei segja aldrei“ Merz náði kjöri í annarri tilraun Niðurlægjandi fyrir Merz og AfD krefst þingkosninga á ný Sakar Rússa um fordæmalaus afskipti af kosningum í Póllandi Kardinálarnir læstir inni á morgun Ríkisstjórn Rúmeníu liðast í sundur eftir sigur öfgahægrimanns Náði ekki kjöri í sögulegri atkvæðagreiðslu Fækkar herforingjum um fimmtung Lokuðu flugvöllum í Moskvu vegna dróna „Ástandið er að versna“ Íbúar Gasa verði fluttir á brott „í þágu eigin öryggis“ Páfabíll verður færanleg heilsugæsla fyrir börn á Gasa Sjá meira