Dýr
1 2 3 4 5 6 … 70 ›
Hundur í hjólastól í Sandgerði Hundurinn Arlo í Suðurnesjabæ lætur ekkert stoppa sig þrátt fyrir að hafa fæðst með engar framlappir. Arlo notar hjólastól til að komast leiða sinnar eða hleypur um á afturlöppunum á heimili sínu. „Lífsglaðasti hvolpur, sem ég hef vitað um“, segir eigandinn. Lífið 9.3.2025 20:06
„Litli besti vinur minn endaði í ruslinu“ Maður sem missti hundinn sinn í upphafi árs segir það hafa þónokkur áhrif á sorgarferlið að vita ekki hvað varð um hræ hundsins en það týndist í meðhöndlun dýraspítala. Innlent 7.3.2025 17:45
Stöndum frekar með selum en syndaselum og pólitískum klækjarefum Í nýjum samstarfssáttmála Samfylkingar, Pírata, Sósíalistaflokksins, Flokks fólksins og Vinstri grænna, þeirra fimm flokka sem myndað hafa sögulega umbótastjórn í Reykjavík á félagslegum grunni, er sett í forgang að taka vel utan um fólk, barnafjölskyldur, börn og dýr. Skoðun 5.3.2025 06:32
Háhyrningadans - hörmungar í Loro Parque Nýleg umfjöllun Vísis undir yfirskriftinni „Hann kann að dansa, maður minn!“ og „Höfrungar og háhyrningar að leik á Tenerife“ gefur tilefni til að minna fólk á dapurlegu tilveru þessa stórbrotnu dýra sem haldið er föngnum við óboðlegar aðstæður í dýragarðinum Loro Parque á Tenerife. Skoðun 2.3.2025 10:02
„Að gera þetta svona rétt fyrir sauðburð þykir okkur mjög grimmilegt“ Dýraverndunarsinni gagnrýnir að Matvælastofnun sendi um 200 kindur af bænum Höfða í Þverárhlíð til slátrunar rétt fyrir sauðburð. Tímasetning aðgerðanna sé grimmileg. Yfirdýralæknir segir Matvælastofnun ekki tjá sig um einstaka mál en segir þó að loks sjái fyrir endann á krónísku dýravelferðarmáli í Borgarfirðinum. Innlent 26.2.2025 19:22
„Hann kann að dansa, maður minn!“ Það er eins gott að vera vel klæddur í vatnsheldum fötum þegar farið er á háhyrningasýningu á Tenerife því það skemmtilegasta sem háhyrningarnir gera er að skvetta vatni á áhorfendur. Þá kunna háhyrningar að dansa eins og Magnús Hlynur Hreiðarsson fréttamaður varð vitni að á dögunum. Lífið 26.2.2025 14:31
Husky réðst á hreindýr, sem þurfti að aflífa Aflífa þurfti hreindýr nærri Höfn í Hornafirði á öðrum degi jól, eftir að Huskyhundur réðst á það. Eigandinn var áminntur vegna atviksins. Innlent 24.2.2025 17:56
Vill kanna hvort dýraníð verði tilkynnt til Neyðarlínunnar Atvinnuvegaráðherra hefur óskað eftir því við dómsmálaráðherra að kanna möguleikann á því að Neyðarlínan tæki við tilkynningum frá almenningi í gegnum 112 þegar það verði vart við dýr í neyð og það sé Neyðarlínan sem vinni úr umræddum tilkynningum og komi boðum til lögregluyfirvalda. Innlent 15.2.2025 16:01
Skotveiðifélag Íslands lýsir yfir áhyggjum af hreindýrastofninum Skotveiðifélag Íslands lýsir yfir áhyggjum sínum af ástandi hreindýrastofnsins og segir það mikilvægt að komast að því hvað veldur og grípa til viðeigandi ráðstafana svo tryggja megi framtíð hreindýrastofnsins. Innlent 15.2.2025 11:55
Átta mánaða kettlingur greinist með fuglaflensu Skæð fuglaflensuinflúensa af gerðinni H5N5 greindist í gær í sýni sem tekið var úr ketti frá Raufarhöfn fyrir viku síðan. Í tilkynningu frá Matvælastofnun, MAST, segir að um sé að ræða átta mánaða gamlan kettling sem varð skyndilega veikur. Innlent 14.2.2025 17:04
„Kemur ekki til greina að niðurgreiða hreindýraveiðar“ Jóhann Páll Jóhannsson umhverfisráðherra segir það svo, vegna tuttugu prósenta hækkunar á veiðigjöldum á hreindýr, að gjaldið verði að sjálfsögðu að standa undir eftirliti og stjórnunar veiðanna. Innlent 14.2.2025 16:25
Bændasamtökin fordæma illa meðferð á hrossum Stjórn deildar hrossabænda innan Bændasamtaka Íslands fordæmir í yfirlýsingu hræðilega meðferð á hrossum sem fjallað var um í fréttum í gær. Innlent 14.2.2025 13:25
Skoða hvort megi taka betur á móti tilkynningum Forstjóri Matvælastofnunar segir það þurfa að skoða hvort taka megi betur á móti tilkynningum um dýraníð. Hún segir það slæma hugmynd að slíta starfsemi stofnunarinnar í tvennt. Innlent 14.2.2025 11:39
Hélt hann hefði verið étinn af hval Hnúfubakur tók kajakræðara í munn sinn í stutta stund við strendur Síle síðustu helgi. Atvikið náðist á myndband. Maðurinn segist hafa verið hræddur um líf sitt og föður síns. Erlent 13.2.2025 23:32
„Þetta er beinlínis hryllingur“ Dýraverndunarsinnar segja Matvælastofnun hafa brugðist þegar þau fengu ábendingu af dýraníði hrossaræktanda. Sláandi myndband náðist af athæfinu. Innlent 13.2.2025 19:11
Sebrahestur gengur laus á Jótlandi Dýrafræðingur óttast að erfitt verði að hafa hendur í hári sebrahests sem slapp úr dýragarði á Jótlandi í Danmörku í gær. Tveir aðrir sebrahestar sem sluppu voru fangaðir fljótt en sá þriðji er ófundinn. Erlent 13.2.2025 11:25
Fuglaflensugreiningum fækkar Tilkynningum um dauða fugla og spendýr hefur fækkað mikið undanfarna daga og öll sýni sem rannsökuð hafa verið síðustu tvær vikur hafa verið neikvæð. Í ljósi þessa álítur Matvælastofnun að dregið hafi verulega úr smithættu. Innlent 7.2.2025 17:48
Hátt í fimm milljónir fiska drápust í sjókvíaeldi í fyrra Um 4,8 milljónir laxa drápust í sjókvíaeldi í fjörðum landsins í fyrra samkvæmt tölum Matvælastofnunar. Hún rannsakar enn dauða meira en milljónar laxa hjá fiskeldisfyrirtæki á Austfjörðum í lok síðasta árs. Innlent 5.2.2025 15:58
Leðurblökur og aðrir laumufarþegar Ein vinsælasta fréttin í íslenskum fjölmiðlum undanfarna daga hefur verið lítil leðurblaka sem fannst á förnum vegi í Reykjavík. Allsendis óljóst er hvernig leðurblakan laumaði sér til landsins, en lögregla var kölluð á staðinn. Leðurblakan náði að sleppa undan löggæslumönnum þann daginn en fannst að lokum af dýraþjónustunni tveim dögum seinna, var fönguð í net og svæfð svefninum langa. Skoðun 3.2.2025 07:00
Refur með fuglainflúensu Fuglainflúensa hefur greinst í refi í Skagafirði. Refurinn var aflífaður í vikunni, en íbúi hafði fundið hann og séð að hann væri augljóslega veikur. Innlent 31.1.2025 15:31
„Þá gerist það bara mjög skyndilega að hundurinn ræðst að mér“ Hundurinn sem réðst á konu á Akureyri fyrir tæpri viku síðan var af Rottweiler-tegund. Konan segir þetta eitt það skelfilegasta sem hún hefur lent í í viðtali við Vikublaðið á Akureyri og í viðtali við Akureyri.net. Innlent 29.1.2025 15:36
Gómuðu leðurblökuna Leðurblakan sem hefur verið á sveimi um Hlíðar og Laugardal undanfarna daga hefur verið fönguð af Dýraþjónustu Reykjavíkur. Hún var varla með lífsmarki og hefur verið svæfð. Innlent 28.1.2025 18:21
Fjórtán metra hvalur í Guðlaugsvík Fjórtán metra hvalur fannst í Guðlaugsvík á Ströndum í upphafi þessarar viku. Í tilkynningu Lögreglunnar á Norðvesturlandi segir að um sé að ræða búrhval og að til samanburðar megi áætla að hvalurinn sé jafnlangur og þrjár Tesla Y bifreiðar eða sjö Cleveland þriggja sæta sófar lagðir samsíða hvalnum. Innlent 28.1.2025 14:08
Óvæntur afrakstur ástarævintýris á Grund gerði allt vitlaust Páfagaukapar á dvalarheimilinu Grund eignaðist óvænt unga fyrir áramót, heimilisfólki til ómældrar gleði. Sérstakur fuglahirðir Grundar segir dýr ómetanlegan félagsskap á dvalarheimilum. Lífið 28.1.2025 08:02
Engin leit í gangi að leðurblökunni Dýraþjónusta Reykjavíkur hefur ekki fengið neinar tilkynningar í dag um leðurblökuna sem lék lausum hala í Reykjavík í gær. Greint var frá því um helgina að leðurblaka hefði sést við Laugardalslaug og nærri Listaháskólanum í Laugarnesi. Innlent 27.1.2025 11:42
Leðurblaka flögrar um Hlíðarnar Lögreglu barst tilkynning um leðurblöku á flugi í hlíðunum í dag en þegar lögreglumenn mættu á vettvang hafði hún flogið á braut. Innlent 26.1.2025 21:51
Þetta heita „glöðustu hundar“ bræðranna Hundar tónlistarmannanna og bræðranna Friðriks Dórs Jónssonar og Jóns Jónssonar, sem bættust við fjölskyldur þeirra um jólin, hafa verið nefndir Nóra og Prins. Hundarnir eru báðir af tegundinni Havanese, sem hefur verið mjög vinsæl meðal fjölskyldufólks hér á landi á síðustu árum. Lífið 23.1.2025 17:19
Gervais minnist hundsins úr After Life Breski grínistinn Ricky Gervais hefur greint frá því að hundurinn sem fór með hlutverk Brandy í þáttunum After Life sé allur. Lífið 23.1.2025 08:52
Andrés Ingi ráðinn framkvæmdastjóri DÍS Andrés Ingi Jónsson, fyrrverandi þingmaður, hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Dýraverndarsambands Íslands (DÍS) og hefur hann þegar hafið störf. Innlent 20.1.2025 07:41
Hvalir spókuðu sig í Hafnarfjarðarhöfn Hafnarfjarðarhöfn iðaði af lífi fyrr í dag þegar hvalir spókuðu sig þar um og léku listir sínar. Innlent 18.1.2025 17:59