Upphaf leiks einkenndist af tæknilegum vandamálum hjá Ármanni, þar sem Hundzi virtist eiga í vandræðum með leikjamús sína. Milli þess sem Ármann tóku tæknilegar pásur sigruðu Young Prodigies upphafsloturnar og komust í 3-0 áður en Ármann sigruðu sína fyrstu lotu.
Eftir að greiða úr tæknilegum örðugleikum náðu Ármann að koma sér inn í leikinn að nýju og í tíundu lotu jöfnuðu þeir leikinn í 5-5 eftir að hafa verið undir fram að því. Í kjölfarið tóku þeir forystuna, 5-6. Young Prodigies sigruðu síðustu lotu hálfleiks og fóru liðin því jöfn til hálfleiks.
Staðan í hálfleik: Young Prodigies 6-6 Ármann
Ármann hófu seinni hálfleik vel og komust í 6-8 en Young Prodigies náðu forystunni að nýju með fjórum sigrum í röð, 10-8. Fljótt fór þó undan fæti að halla hjá ungu liði Young Prodigies, en Ármann sigruðu lotur trekk í trekk og raunar sigruðu þeir allar loturnar sem eftir voru af leiknum.
Lokatölur: Young Prodigies 10-13 Ármann
Ármann hafa því, eins og kom áður fram, tryggt sér þriðja sæti Ljósleiðaradeildarinnar á þessu tímabili. Young Prodigies munu svo spila úrslitaleik um sjötta sæti gegn FH á laugardaginn, en liðin eru jöfn í 6-7 sæti með 16 stig hvort.