Rafíþróttir

Átta sigur­vegarar í fyrstu um­ferð Stórmeistaramótsins

Snorri Már Vagnsson skrifar
games_LD_3games_rasterized.psd(1)

Átta leikir voru spilaðir í fyrstu umferð Stórmeistaramótsins í Counter-Strike í kvöld.

Liðin sem spiluðu í Ljósleiðaradeildinni voru mikið í Kastljósinu og báru mörg hver sigur af hólmi í kvöld. ÍBV, FH, Young Prodigies, Ármann, NOCCO Dusty, Breiðablik og Þór sigruðu öll sína leiki. Saga og ÍA þurftu þó að lúta í lægra gegn sínum andstæðingum.

Keppt var eftir „Best of three“ kerfi, en þá þarf lið að sigra tvo leiki af Counter-Strike til að hafa sigur.

Allar lokatölur:

ÍA 1-2 ÍBV

FH 2-0 Fjallakóngar

Young Prodigies 2-1 Hitech

Ármann 2-0 Vallea

NOCCO Dusty 2-0 GoodCompany

SAGA 0-2 Aurora

Breiðablik 2-1 Ulfr

Þór 2-0 Fylkir

Næsta umferð fer fram á fimmtudaginn, hlaupársdag 29. febrúar. Sjá má nánari upplýsingar um stöðu leikja, riðla og uppsetningu móts á frag.is






×