Reykjavíkurborg fer fyrir brúargerðinni í Grænugróf. Hún er hluti verkefna samgöngusáttmálans, sem gerður var fyrir fimm árum milli ríkisins og sveitarfélaganna sex á höfuðborgarsvæðinu. Borgin segir verkefnið í samræmi við þá stefnu hennar að efla vistvæna ferðamáta og að auka hlutdeild hjólreiða sem samgöngumáta í borginni.

Í byrjun febrúar hófst vinna við aðra göngu- og hjólabrú um fimmhundruð metrum ofar í ánni, en um hana var fjallað í frétt Vísis um síðustu helgi. Sú brú er liður í gerð Arnarnesvegar um Vatnsendahæð, sem Vegagerðin stendur fyrir í samstarfi við Kópavogsbæ og Reykjavíkurborg.

Tilkoma beggja þessara brúa mun opna á fjölbreyttari ferðamöguleika, hvort sem er fyrir gangandi, skokkandi eða hjólandi, á efri hluta Elliðaárdalssvæðisins á milli Breiðholtsbrautar og Vatnsveitubrúar. Þar hefur verið mun lengra á milli göngubrúa yfir árnar heldur en í neðri hluta dalsins, neðan Árbæjarstíflu.

Nýja brúin mun greiða leið að lítt uppgötvaðri útivistarperlu sem vaxandi skógarreitir hafa verið að mynda í Grænugróf. Betra aðgengi opnast jafnframt að fögrum hluta Dimmu en brúin kemur yfir ána á slaufukafla og verður lögð á milli tveggja bugða í ánni.

Verkinu fylgja 800 metrar af nýjum stígum og verða göngu- og hjólastígar aðskildir þar sem því verður við komið. Í verkinu felast einnig breytingar á reiðstígum og gerð nýs áningarstaðar við Dimmu.

Samið var við verktakafyrirtækið Gleipni um gerð Grænugrófarbrúarinnar sem og stígagerð henni tengdri fyrir 322 milljónir króna en tilboð verktakans reyndist 90,3 prósent af kostnaðaráætlun. Heimir Heimisson, framkvæmdastjóri Gleipnis, segir verklok fyrir 1. desember. Rétt eins og í hinni brúnni verður verktakanum þó ekki leyft að vinna nálægt ánni frá vori og fram á haust til að trufla ekki laxveiði.

Samkvæmt upplýsingum sem umhverfis- og skipulagssvið lagði fyrir borgarráð er áætlað að heildarkostnaður verði 460 milljónir króna. Þar af er hluti Reykjavíkur 60 milljónir króna.

Vegna framkvæmdanna hefur hestamannafélagið Fákur tilkynnt félagsmönnum að verktakinn muni nýta reiðveg til að komast á verkstað. Umferð vöruflutningabíla verði um hluta vegarins og eru reiðmenn beðnir að fara varlega meðan á framkvæmdum stendur. Jafnframt verði brýnt fyrir bílstjórum að taka tillit til ríðandi umferðar.

Samkvæmt upplýsingum á vef Reykjavíkurborgar verður brúin við Grænugróf 55 metra löng og 6,5 metra breið; nægilega breið til að unnt sé að skilja að gangandi og hjólandi umferð. Tíu sentimetra blá rör mynda samhverf handrið, sem sveigjast á hliðum brúarinnar. Segir borgin þarna vísað í kalda vatnið og vatnsveituna.

Sagt er að mikið sé lagt í lýsingarhönnun, sem muni setja svip á umhverfið á sama tíma og gætt sé að því að lýsingin hafi ekki áhrif á lífríki árinnar. Lýsingunni sé beint á brúargólfið þar sem nauðsynlegt sé að gæta þess að ljós fari ekki út í árnar.

Á vef borgarinnar segir að markmið með verkefnum samgöngusáttmálans sé meðal annars að stuðla að auknu umferðaröryggi, hagkvæmum, greiðum og skilvirkum samgöngum á höfuðborgarsvæðinu með jafnri uppbyggingu innviða allra samgöngumáta.