Bæði lönd eru meðal sextán landa sem frystu greiðslur til Flóttamannaaðstoðar Sameinuðu þjóðanna (UNRWA) í kjölfar þess að ásakanir um aðild starfsmanna samtakanna að hryðjuverkaárásum Hamas litu dagsins ljós. Síðar kom á daginn að starfsmennirnir hefðu verið reknir áður en rannsókn gat átt sér stað.
Á föstudag var tilkynnt að Kanada myndi halda áfram greiðslum eftir nokkuð hlé að því gefnu að rannsókn málsins haldi áfram. Sænska ríkisstjórnin gaf það svo út á laugardag að hún myndi senda samtökunum upphæð sem nemur 200 milljónum sænskra króna eða rúmum tveimur og hálfum milljörðum íslenskra.
Ráðherra vongóður og fundað í dag
Fréttastofa sendi fyrirspurn á utanríkisráðuneytið til að spyrja hvort ákvörðun hefði verið tekin um það hvort Íslandi myndi halda áfram greiðslum sínum eða ekki. Einnig var spurt hvort Ísland hefði verið í samráði við aðrar þjóðir vegna málsins og hvort ráðuneytið hefði verið í samskiptum við UNRWA.
„Eins og fram kom í máli utanríkisráðherra á Alþingi í síðustu viku er hann vongóður um að íslensk stjórnvöld geti staðið við kjarnagreiðslu til UNRWA sem á að berast fyrir 1. apríl næstkomandi samkvæmt rammasamningi,“ sagði í svari ráðuneytisins.
„Utanríkisráðuneytið hefur undanfarið átt í víðtæku samráði við stjórnvöld líkt þenkjandi ríkja og auk þess aflað nánari upplýsinga hjá stofnunni. Í þessu samhengi mun ráðuneytisstjóri sækja fund norrænna þróunarmálaráðherra með framkvæmdastjóra UNRWA í dag, í fjarveru ráðherra, þar sem við munum fá nýjustu upplýsingar um stöðu mála hjá stofnuninni,“ sagði einnig í svarinu.
