Heilbrigðisstofnun Suðurlands er alltaf að vinna að því að auka þekkingu starfsfólks stofnunarinnar og því var haldin fjölmenn vísindaráðstefnu í sala Fjölbrautaskóla Suðurlands á Selfossi þar sem fjölmörg fróðleg erindi voru haldin. Díana Óskarsdóttir, forstjóri var meðal annars með erindi um gervigreind en stofnunin er í samstarfi við Þýska fyrirtækið Siemens þar sem gervigreind er látin greina myndir meðal annars í röntgen, segulómun og tölvusneiðmyndum fyrir þann lækni, sem er á vakt.
„En við slíkar aðstæður getur úrlestur gervigreindar stutt við ákvarðanatöku lækna þar til niðurstöður sérfræðinga liggja fyrir. Og það er líka gott fyrir lækna sem eru á vöktum og hafa ekki aðgang að röntgensérfræðingum að geta fengið niðurstöður strax. Áreiðanleiki gervigreindar er í mörgum tilfellum ekki síðri en greiningar lækna,” sagði Díana meðal annars í erindi sínu.
Díana segir að Heilbrigðisstofnun Suðurlands sé alltaf að fikra sig inn í framtíðina vil að finna lausnir til að hjálpa við þær áskoranir, sem stofnunin stendur frammi fyrir og er að glíma við alla daga. Þar komi gervigreind sterklega inn.

„Já og hún mun hjálpa okkur að auka nákvæmni í allskonar greiningum og getað sparað tíma hjá okkur og við getum veitt skilvirkari þjónustu en hún er að sjálfsögðu ekki að koma í staðinn fyrir okkar starfsfólk heldur er að koma meira inn til að hjálpa okkur og veita betri þjónustu,” segir Díana.
Ertu ekkert hrædd við þetta?
„Ég er ekki hrædd við þetta en við þurfum að vanda okkur. Við erum að nota viðkvæmar upplýsingar og við þurfum alltaf að taka tillit til þess að horfa til persónuverndar og hvernig við erum að nota þau gögn, sem við erum að setja inn í gervigreindina, klárlega,” segir Díana, forstjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurlands.
