Trygginguna þarf Trump að leggja fram eftir að hann var dæmdur til að greiða áðurnefnda upphæði í sekt eftir að hann var fundinn sekur um að hafa ýkt virði eigna sinna til að tryggja sér betri lánakjör.
Trump, sem á fjölda dómsmála yfir höfði sér á sama tíma og hann freistar þess að komast aftur í Hvíta húsið, hefur biðlað til áfrýjunardómstóls um að frysta sektargreiðsluna eða samþykkja að lækka tryggingakröfu saksóknara í 100 milljónir dala.
Ef dómstóllinn verður ekki við beiðni hans geta yfirvöld krafist þess að hann reiði af hendi allt það lausafé sem hann á og geri eignarnám fyrir afgangnum. Til að koma í veg fyrir þetta gæti Trump hins vegar gripið til neyðarúrræða; selt sjálfur eina af fasteignum sínum eða leitað á náðir annarra efnamanna.
Þess má geta í þessu samhengi að greint hefur verið frá því að Trump hygðist funda með Elon Musk á næstunni.
Ástæða þess að fyrirtækin eru sögð hafa neitað Trump um tryggingu er að hann á hreinlega ekki nóg af lausafé til að leggja fram á móti. Að teknu tilliti til þóknana og vaxta er hann sagður þurfa að leggja fram 550 milljónir dala í lausafé gegn hinu 454 milljón dala tryggingabréfi.
Trump er sagður liggja á 350 milljónum í lausafé en það hefur gengið á forðann síðustu misseri, ekki síst eftir að hann neyddist til að leggja fram yfir 90 milljónir dala í tryggingu í meiðyrðamáli sem E. Jean Carroll, sem sakaði Trump um kynferðisofbeldi, höfðaði gegn forsetaefninu og vann.