Besta deild karla í knattspyrnu hófst í gær þegar Víkingur lagði Stjörnuna 2-0 á heimavelli sínum í Fossvoginum. Í dag fara síðan fram fjórir leikir og verða þeir allir í beinni útsendingu á íþróttarásum Stöðvar 2.
Sævar Pétursson framkvæmdastjóri knattspyrnudeildar KA birti í morgun myndband á samfélagsmiðlinum X þar sem hann sýndi frá því þegar verið var að blása snjó úr sætum í stúkunni á KA-vellinum. Snjór er yfir vellinum sjálfum sömuleiðis og ljóst að KA-menn munu hafa nóg að gera við undirbúning vallarsvæðisins áður en leikurinn verður flautaður á klukkan 13:00.
Veislan hefst eftir 4 tíma. Eins og goður maður sagði þá er veður einfaldlega hugarfarsástand, smá kakó og þetta verður veisla. pic.twitter.com/13YspI48ld
— saevar petursson (@saevarp) April 7, 2024
„Eins og góður maður sagði þá er veður einfaldlega hugarástand, smá kakó og þetta verður veisla,“ skrifar Sævar í færslu sinni.
Leik KA og HK var flýtt um fjóra tíma vegna slæmrar veðurspár á Akureyri en hann átti upphaflega að hefjast klukkan 17:00 í dag.