Á leið í segulómun vegna meiðslanna í Lautinni Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 8. apríl 2024 18:15 Hrafn (fyrir miðju af KR-ingunum) meiddist í Lautinni. Vísir/Anton Brink Hrafn Tómasson, betur þekktur sem Krummi, kom inn af varamannabekk KR þegar liðið vann Fylki 4-3 í 1. umferð Bestu deildar karla. Hann entist þó ekki lengi þar sem hann varð fyrir meiðslum á hné.
KR vann Fylki í leik sem var hreint út sagt hin besta skemmtun. KR komst 4-1 yfir en heimamenn svöruðu með tveimur mörkum undir lok leiks. Gestirnir urðu þó fyrir áfalli þegar Aron Sigurðarson fór meiddur af velli í fyrri hálfleik. Í hans stað kom hinn ungi Hrafn inn af bekknum en hann þurfti einnig að fara af velli vegna meiðsla. Í spjalli við Fótbolti.net staðfesti Hrafn að hann væri á leið í segulómun og eftir það verði hægt að meta hversu alvarleg meiðslin eru. Eftir leik hafði Gregg Ryder, þjálfari KR, þetta að segja í samtali við Vísi: „Við tökum Aron aðallega út af bara til að fyrirbyggja frekari meiðsli. Hann fann eitthvað til í upphituninni. Ég vona að meiðsli Hrafns séu ekki alvarleg, hann hefur verið frábær fyrir okkur á undirbúningstímabilinu. Hann er mikilvægur fyrir liðið og við vonum það besta en getum ekki alveg sagt hversu alvarlegt þetta er núna.“ Atli Sigurjónsson kom inn af bekknum í stað Hrafns og skoraði tvö af fjórum mörkum KR í leiknum. Það er þó ljóst að um mikið áfall er að ræða fyrir KR ef Hrafn verður frá til lengri tíma. KR mætir Stjörnunni í Garðabænum í 2. umferð Bestu deildar karla. Fer leikurinn fram 12. apríl næstkomandi.
Fótbolti Íslenski boltinn Besta deild karla KR Mest lesið Jafngildi 20 Þjóðarhalla við Hringbraut svo ein á að geta risið í Laugardal Sport Nauðgunardómurinn ógildur og Dani Alves er frjáls ferða sinna Sport Depay stóð á boltanum og slóst áður en hann lyfti titlinum Fótbolti Víkingar rúlluðu KR-ingum upp Fótbolti Dagskráin í dag: Átta liða úrslit FA bikarsins og margt fleira Sport Lét dóttur sína hlaupa þrátt fyrir að hún ætti erfitt með að anda Sport Sabonis ekki með Litháen á EM Körfubolti Markasúpa í Mjólkurbikarnum Fótbolti Segir að Schumacher sé ófær um að tala: „Staðan er mjög sorgleg“ Formúla 1 Andri Már markahæstur en Ýmir hafði betur í Íslendingaslagnum Handbolti Fleiri fréttir Frumraun Gylfa í beinni í kvöld „Mér finnst þeir geta farið í báðar áttir“ Besta-spáin 2025: Meðvindur þrátt fyrir mótbyr Sænska stórveldið keypti Ísabellu Söru Grindvíkingar sækja um í hamfarasjóð UEFA Heimi finnst aldursumræðan algjörlega galin Ný treyja KR kynnt með pompi og prakt „Þetta er veikara lið“ Besta-spáin 2025: Leiðin orðin grýttari „Mjög krefjandi tímabil framundan“ „Lærir með hverju árinu hvað maður á að hlusta á og hvað ekki“ Besta-spáin 2025: Ætla að brosa aftur í mótslok Aftur hefur KR leik í Laugardalnum Nýi markvörður KA kom snemma inn af bekknum í fyrsta leik Ísabella Sara sögð á leið til Rosengård Besta auglýsing Aftureldingar: „Þetta er enginn helvítis Pizzabær“ „Veturinn eins og best verður á kosið“ Besta-spáin 2025: Í túninu heima Víkingar framlengja við „besta markmanninn í Bestu deildinni“ Þór/KA vann í vítaspyrnukeppni og mætir Breiðabliki í úrslitaleik LUÍH: Heimir var um 90 mörkum frá 100 marka veggnum Strákar á Selfossi söfnuðu fé fyrir jafnaldra sinn í HK „Búnir að missa of marga af þessum heimastrákum“ Besta-spáin 2025: Drepþreyttir á deildaflakkinu Gísli Laxdal snýr heim á Skagann „Ég lét menn aðeins heyra það í hálfleik“ Sjáðu mörkin sem tryggðu Val Lengjubikarinn Uppgjörið: Fylkir - Valur 2-3 | Endurkoma og Valur vann Lengjubikarinn Andrea skaut Blikum áfram í úrslitaleikinn Pedersen framlengir við Val Sjá meira