Tveir ofurstar í öryggissveit Úkraínu sem sér um að tryggja öryggi ráðamanna þar í landi hafa verið handteknir vegna málsins, auk annarra. Þeir eru sakaðir um að hafa leitað að mönnum í lífvarðasveit Selenskís sem væru tilbúnir til að ræna forsetanum og myrða hann.
Ofurstarnir eru einnig sagðir hafa ætlað að reyna að ráða Vasíl Malíjúk, yfirmann úkraínsku leyniþjónustunnar SBU, og Kíríló Búdanóv, yfirmann leyniþjónustu úkraínska hersins, GUR, af dögum, auk annarra háttsettra embættismanna.
Malíjúk segir að aðgerðin hafi átt að vera gjöf til Vladimírs Pútín, forseta Rússlands, vegna innsetningarathafnar hans í dag. Þess í stað hafi hún misheppnast. Hann varaði þó við því að vanmeta styrk og reynslu Rússa.
Sjá einnig: Pútín hefur fimmta kjörtímabilið með meiri völd en áður
SBU birti í morgun tólf mínútna langt myndband á samfélagsmiðlum þar sem farið er yfir málið og myndir birtar af vopnum, svo eitthvað sé nefnt. Myndbandið er á úkraínsku.
Forsvarsmenn SBU segja að annar ofurstanna hafi keypt vopn, sprengjur og dróna vegna banatilræðanna. Hann hafi verið hleraður þegar hann ræddi við aðila á vegum FSB í Rússlandi. Samkvæmt SBU áttu ofurstarnir að fá fúlgur fjár að launum en þeir eru báðir sagðir hafa verið ráðnir af Rússum fyrir innrásina í Úkraínu í febrúar 2022.
Þar kemur fram að áætlunin um að ráða Búdanóv af dögum hafi snúist um að leka upplýsingum um staðsetningu hans og gera árás á þá byggingu með eldflaugum. Þá átti að nota dróna til að frekari árásir á bygginguna og þá sem lifðu af og skjóta fleiri eldflaugum.

Hafa áhyggjur af leynilegum aðgerðum Rússa
Stutt er síðan pólskur maður var handtekinn í tengslum við meint áform rússneskra yfirvalda um að ráða Selenskí af dögum. Maðurinn er sakaður um að hafa ætlað að útvega Rússum upplýsingar um öryggi á flugvelli nærri landamærum Úkraínu, þar sem Selenskí er tíður gestur.
Mikið magn hergagna fer um þennan flugvöll á leið til Úkraínu.
Financial Times sagði frá því um helgina að ráðamenn á Vesturlöndum og forsvarsmenn leyniþjónusta í Evrópu hefðu auknar áhyggjur af því að Rússar væru að skipuleggja skemmdarverk og annars konar leynilegar aðgerðir í Evrópu og víðar.
Meðal annars væru Rússar að undirbúa sprengjuárásir og íkveikjur í Evrópu.