Greint var frá því þann 16. mars síðastliðinn að kvöldið áður hefði hjólbarði losnað undan strætisvagni og endað á nærliggjandi húsi eftir að hafa farið utan í nokkra kyrrstæða bíla.
Vísi hefur nú áskotnast myndbandsupptaka úr öryggismyndavél hússins sem hjólið endaði á. Í myndskeiðinu sést hvernig hjólið kemur skoppandi inn á Rauðarárstíginn við Miklubraut og tekur síðan stórt skopp upp á svalir hússins, sem brotna nokkuð illa.
Mildi að ekki fór verr
Ljóst er að mikil mildi er að ekki fór verr, enda skoppaði þungt hjólið talsvert langa leið áður en það staðnæmdist við húsið. Húsráðandi segir í samtali við Vísi að atvikið hafi gerst rétt upp úr klukkan 22, en á þeim tíma sé oft mikil umferð gangandi vegfaranda í nágrenninu. Fólk að ganga með hunda við Klambratún og nágrenni fyrir svefninn og þar fram eftir götunum.

Þá hafi leigjandi á jarðhæð hússins verið að klæða sig í jakka og á leið út um dyr á hlið hússins sem hjólið hæfði. Ekki hefði þurft að spyrja að leikslokum hefði hann verið kominn út og orðið í vegi dekksins.
Hluti af verkferlum að herða rærnar
Jóhannes Svavar Rúnarsson, framkvæmdastjóri Strætó BS, segir í samtali við Vísi að það gerist af og til að hjól losni undan strætisvögnum. Greint var frá því tæpum mánuði eftir atvikið sem hér um ræðir að hjól hefði losnað undan öðrum strætisvagni í Hlíðunum í Reykjavík.
Því sé það hluti af verkferlum að herða rærnar reglulega en það geti gerst að rærnar losni meira en venjulega, til að mynda þegar ekið er yfir hraðahindranir og þess háttar.
Vagninn sem hér um ræðir sé á vegum verktaka og því bæti tryggingafélag verktakans tjón á svölunum og þeim bílum sem hjólið rakst utan í.