„Í fyrra höfðum við ekki undan að framleiða mæðradagsvörur, þær voru svo fljótar að klárast þannig í ár reynum við okkar besta að framleiða meira. Mæðradagurinn hefur farið stækkandi með hverju árinu og mér persónulega finnst æðislegt að halda upp á hann og reyni alltaf að færa mömmu eitthvað fallegt í tilefni dagsins“ segir Sylvía Haukdal en hún og Auður Ögn reka sælkerabakaríið 17 sortir.
Þær eru báðar forfallnir sælkerar og ekki sykurlausa örðu að finna í bakaríinu þeirra.

„Okkar sérsvið liggur meira í sætindum,“ segir Sylvía sposk. „Við erum báðar miklir sælkerar þegar kemur að eftirréttum og mat, elskum að skoða ný bakarí og veitingastaði og smakka allskonar. Auður er duglegri þegar kemur að eldamennsku og ég hef enn ekki smakkað neitt vont sem hún eldar. Svo er mín sterkari hlið baksturinn og eftirréttirnir. Vinsælasta kakan okkar er karamellubotnar með saltkaramellu og daim, einhver klassík sem fólk er alltaf ánægt með,“ segir Sylvía. Bragðlaukar fólks séu þó móttækilegir fyrir tískubylgjum.
„Bragðtegundir ótrúlega breytilegar og það koma annað slagið tískubylgjur. Til dæmis voru þristakökur mjög vinsælar á tímabili og eru reyndar enn. Pantanirnar sem við fáum geta verið alveg ótrúlega fjölbreyttar,“ segir Sylvía en þær Auður rigga upp skemmtilegum og sykursætum kökum fyrir fyrirtæki, afmæli, nafnaveislur, brúðkaup, gæsanir, fermingar, útskriftir og fl.

„Óvenjulegasta kakan sem við gerðum var fyrir þorrablót og var þemað lömbin þagna, sú kaka skartaði þessum fína pung hangandi aftan á kökunni sem vakti mikla lukku.“
Saga 17 sorta spannar hátt í áratug en Auður Ögn opnaði 17 sortir árið 2015 úti á Granda. Sylvía varð meðeigandi 2022 þegar 17 sortir færðu bakaríið yfir í Hagkaup í Smáralind og hóf að selja vörurnar í verslunum Hagkaup á höfuðborgarsvæðinu.

„Það munar svo miklu að vera tvær saman í þessu að geta stutt við hvor aðra og tekið frí án þess að hafa áhyggjur. Við erum ótrúlega gott teymi, passlega líkar en samt ólíkar og svo auðvitað alveg hrikalega skemmtilegar þannig það er sjaldan dauf stund í kringum okkur,“ segir Sylvía.