Að minnsta kosti nítján eru sagðir særðir og er talið að lík muni finnast í rústunum.
Björgunarstörf hafa reynst erfið í dag þar sem húsið hefur hrunið frekar en samkvæmt fréttum fjölmiðla í Rússlandi hefur engan björgunaraðila sakað vegna þess.
AP fréttaveitan hefur eftir ríkisstjóra Belgorod-héraðs að aðrar árásir hafi verið gerðar á borgina. Einn hafi dáið í gær og 29 særst. Rússneskir miðlar segja björgunarfólk hafa þurft að leita sér skjóls vegna viðvarana um árásir á borgina.
*video from SW side
— Liveuamap (@Liveuamap) May 12, 2024
Video of the collapse of the roof pic.twitter.com/72u4dOCM6i
Ráðamenn í Rússlandi halda því fram að húsið sem hrundi í morgun hafi orðið fyrir brotum úr eldflaugum sem skotnar voru niður yfir borginni. Þetta hefur ekki verið staðfest en Úkraínumenn hafa oft gert árásir á borgina áður.
Þó bendir ýmislegt til þess að byggingin hafi mögulega orðið fyrir svokallaðri svifsprengju sem varpað hafi verið úr rússneskri herþotu.
Rússar hafa notað þessar sprengjur mikið á undanförnum mánuðum. Þar er um að ræða gamlar en stórar sprengjur sem búnar eru vængjum og staðsetningarbúnaði. Þeim er varpað úr mikilli hæð og geta svifið tugi kílómetra áður en þær lenda á skotmörkum sínum.
Video of the impact, explosion at the first floors pic.twitter.com/1hZWYl0Y4w
— Liveuamap (@Liveuamap) May 12, 2024
Þetta hefur gert rússneskum flugmönnum kleift að varpa sprengjunum langt frá loftvörnum Úkraínumanna og valda sprengjurnar miklum skemmdum þegar þær lenda.
Rússar hófu á dögunum áhlaup inn í Karkívhérað, frá Belgorodhéraði, og eiga bardagar sér stað á og við landamærin. Þetta yrði ekki í fyrsta sinn sem Rússar varpa sprengjum á Belgorod fyrir mistök.
Sjá einnig: Hefja árásir nærri Karkív
Myndefni sem birt hefur verið á samfélagsmiðlum í Rússlandi í morgun, bendir til þess að sprengingin hafi orðið norðaustanmegin í byggingunni, sem er í samræmi við að svifsprengja sem hafi átt að lenda í Úkraínu hafi fallið til jarðar þar. Eldflaug frá Úkraínu hefði komið úr suðvestri.
Þar að auki sýnir myndefni frá vettvangi í morgun að bílar á bílastæði norðanmegin við bygginguna eru verulega skemmdir en ekki bílar sunnan megin við húsið.
Vehicles almost intact on the southern side and seriously damaged on the northern side pic.twitter.com/c5S1Ue8zqa
— Liveuamap (@Liveuamap) May 12, 2024
Ráðamenn í Úkraínu hafa enn ekki tjáð sig um atvikið en það gera þeir sjaldan sem aldrei um sambærileg atvik og mögulegar árásir þeirra í Rússlandi.