Ísak nýtti tækifærið sitt vel og lagði upp mark Norrköping sem tapaði leiknum, 2-1. Liðið er án sigurs í síðustu fjórum leikjum og er í 13. sæti deildarinnar með ellefu stig eftir tíu leiki.
Arnór Ingvi Traustason var á sínum stað í byrjunarliði Norrköping og Ísak fékk einnig tækifæri í dag.
Nikola Vasic kom Brommapojkarna yfir strax á 5. mínútu en Christoffer Nyman jafnaði fyrir Norrköping tuttugu mínútum síðar, eftir undirbúnings Ísaks.
Vasic skoraði svo annað mark sitt í uppbótartíma fyrri hálfleiks og það réði úrslitum. Lokatölur 2-1, heimamönnum í vil. Ísak og Arnór Ingvi voru báðir teknir af velli í seinni hálfleik.
Ísak kom til Norrköping frá Stjörnunni síðasta sumar. Þá lék hann ellefu deildarleiki með liðinu; skoraði þrjú mörk og gaf tvær stoðsendingar. Á þessu tímabili hefur hann skorað eitt og lagt upp annað í fimm deildarleikjum.