Meðhöndlarinn farinn að nudda á Kvíabryggju Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar 27. maí 2024 07:01 Jóhannes Tryggvi hefur verið að taka á móti fólki og meðhöndla það inni í fangelsinu á Kvíabryggju. Vísir Jóhannes Tryggvi Sveinbjörnsson, sem var sakfelldur í Landsrétti fyrir kynferðisbrot gegn fimm konum, er farinn að taka á móti og meðhöndla fólk á Kvíabryggju gegn gjaldi. Jóhannes afplánar þar sjö ára uppsafnaðan fangelsisdóm.
Í nóvember 2021 var Jóhannes dæmdur í sex ára fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn fjórum konum. Annað sambærilegt mál, gegn fimmtu konunni, var svo tekið fyrir í Landsrétti í síðastliðnum október og hann dæmdur í átján mánaða fangelsi til viðbótar. Rak fingur inn í leggöng og endaþarm Jóhannes er þekktur nuddari og höfðu konurnar allar leitað til hans vegan stoðkerfisvandamála og vænst þess að fá meðhöndlum hjá honum í samræmi við þá kvilla. Fram kom í dómum yfir honum að við meðferð hafi Jóhannes byggt upp traust hjá konunum og brotið á þeim. Höfðu þær allar verið fáklæddar og varnarlausar á nuddbekk á meðhöndlunarstofu hans þegar brotin áttu sér stað. Brotin áttu sér stað á árunum 2009 til 2015 og voru brotin keimlík. Þess ber að geta að Jóhannes er hvorki lærður sjúkranuddari né hnykkjari en hann hefur, að eigin sögn, lært nudd við Naturmedicinske Kursuscenter í Kaupmannahöfn og sótt námskeið í hnykkingum á Spáni. Hann nauðgaði konunum þegar hann rak fingur í leggöng eða endaþarm þeirra án nokkurra tenginga við stoðkerfismeðhöndlunina sem þær þurftu á að halda. Mikill fjöldi kvenna kærði Jóhannes Tryggva en ellefu af fimmtán málum voru felld niður. Fjörutíu konur höfðu leitað til réttargæslumanns vegna Jóhannesar þegar fréttastofa fjallaði um málið í febrúar 2022. Nuddar fólk inni á herbergi Jóhannes Tryggvi hóf afplánun á Litla-Hrauni um mitt ár 2022 en var færður á Kvíabryggju í febrúar í fyrra. Allir fangar hefja afplánun í lokuðu fangelsi en hafa möguleika a að fara yfir í opið fangelsi, eins og á Kvíabryggju, þar sem hvorki eru rimlar fyrir gluggum né svæðið sérstaklega afgirt. Fréttastofu hafa borist ábendingar frá nokkrum vegna nuddþjónustu Jóhannesar á Kvíabryggju og hefur fólk furðað sig á að Jóhannes fái að stunda slíka iðju innan fangelsisveggjanna. Samkvæmt heimildum fréttastofu hefur Jóhannes komið upp nuddbekk inni á herbergi sínu – sem fréttastofa hefur ljósmynd af undir höndum – þar sem hann hefur undanfarið hálft ár tekið á móti fólki og meðhöndlað. Þar á meðal tekur hann á móti aðstandendum annarra fanga og nuddar hann einhvern í hverri viku. Einn þeirra sem fréttastofa hefur rætt við hafði sjálfur verið nuddaður af Jóhannesi inni á Kvíabryggju og greitt fyrir það. „Við vitum ekkert hvað gerist inni á herbergjum“ Páll Winkel fangelsismálastjóri vísaði fyrirspurn fréttastofu vegna málsins til Birgis Guðmundssonar, forstöðumanns á Kvíabryggju. Birgir sagðist ekki geta tjáð sig um málið og sagði starfsmenn fangelsisins ekki vita hvað færi á milli fanga og gesta þeirra inni á herbergjum. Rúmast það innan reglna fangelsisins að fangi geti veitt svona þjónustu? „Hann fær gesti eins og aðrir. Ég veit svo sem ekki hvað… Þetta eru hans gestir, ég veit ekkert hvað fer þeirra á milli,“ segir Birgir. „Menn hafa verið með vinnuna sína hérna, bókhald og annað. Menn fá að koma með svoleiðis með sér og vinna frá fangelsum. Svona lagað höfum við aldrei þurft að taka afstöðu til í rauninni,“ segir Birgir. „Við getum ekki stoppað það ef hann nuddar einhvern samfanga sinn eða einhvern gest, sem kemur hérna. Við vitum ekkert hvað gerist inni á herbergjum þegar koma heimsóknargestir. Það er alveg útilokað mál.“
Fangelsismál Mál Jóhannesar Tryggva Sveinbjörnssonar Tengdar fréttir Dómur Jóhannesar Tryggva fyrir nauðgun þyngdur Landsréttur þyngdi í dag dóm yfir Jóhannesi Tryggva Sveinbjörnssyni vegna nauðgunarbrots gegn konu á nuddstofu hans árið 2012. Jóhannes var dæmdur í átján mánaða fangelsi og til þess að greiða tvær milljónir króna. 6. október 2023 14:16 Nuddari ákærður fyrir nauðgun Héraðssaksóknari hefur ákært nuddara fyrir að hafi í starfi sínu nauðgað konu á heimili hennar. Honum er gefið að sök að hafa haft önnur kynferðismök en samræði við konuna án hennar samþykkis, með því að kyssa bak hennar, nudda hana milli rasskinna, nudda kynfæri hennar utan klæða og setja fingur inn í leggöng hennar, henni að óvörum, þar sem hún lá léttklædd á nuddbekk. 17. apríl 2023 08:00 Meðhöndlarinn sem braut á fjölda kvenna ætlar með málið til Evrópu Jóhannes Tryggvi Sveinbjörnsson, sem hlaut uppsafnað sjö ára fangelsisdóm fyrir kynferðisbrot gegn fimm konum, fær mál sitt ekki tekið upp hjá Endurupptökudómi. Hann hefur hrundið af stað fjáröflun í eigin þágu og hyggst fara með málið fyrir Mannréttindadómstól Evrópu. Þá segir hann heimildamynd um sögu sína vera í bígerð. 2. mars 2023 20:13 Mest lesið Lést í umferðarslysi við Álfabakka Innlent Tuttugu og þrjár konur stíga fram og fórnarlömb raðnauðgara talin á sjöunda tug Erlent „Auðvitað lét ég hann heyra það“ Innlent „Þetta er bara brandarakvöld“ Innlent Stöðumælaverðir lausir við ákvörðun um sekt Innlent Handtökur hér á landi þegar stór barnaníðssíða var tekin niður Innlent „Það munaði minnstu að þeir dræpu mig“ Innlent Svæðisstjóri Vegagerðarinnar sleginn vegna banaslyssins Innlent Flugmaðurinn sem týndi herþotu tjáir sig Erlent Hafa núna skrifborð þar sem áður var flugstýri Innlent Fleiri fréttir Furðar sig á undirritun án aðkomu Alþingis Vilja hagræða í Reykjavík og leita til borgarbúa Grindvíkingum hleypt inn í bæinn á ný Fimm ára nauðgunardómur stendur Boðar brottvísanir brotamanna og afnám átján mánaða reglu Handtökur hér á landi þegar stór barnaníðssíða var tekin niður Segir Viðreisn óforbetranlegan stjórnlyndisflokk Aðalmeðferð hafin í Menningarnæturmáli Bein útsending: Þjóðaröryggi – Íslendingar og hafið Stöðumælaverðir lausir við ákvörðun um sekt Svæðisstjóri Vegagerðarinnar sleginn vegna banaslyssins Möguleiki að kvikugangurinn opnist nærri Reykjanesbraut Möguleiki að gos hefjist norðanmegin en ólíklegt þó Af neyðarstigi og á hættustig 48 þúsund króna sekt fyrir að beita hund harðýðgi „Þetta er bara brandarakvöld“ Hafa núna skrifborð þar sem áður var flugstýri Meðalævilengd eykst milli ára og ungbarnadauði minnkar Lést í umferðarslysi við Álfabakka „Auðvitað lét ég hann heyra það“ Samfylkingin mælist með 27 prósenta fylgi Réðust á og hótuðu starfsmönnum verslunar Engin virkni á gossprungunni en glóð logar í hrauninu Skipað í nýja Grindavíkurnefnd Sjálfstæðisflokkurinn langstærstur Borgarstjóra falið að beita sér fyrir því að einkaflug á Reykjavíkurflugvelli fari annað Sækja um leyfi fyrir Kvíslatunguvirkjun Annasamur sólarhringur hjá björgunarsveit Patreksfjarðar Gosið í dag bara smá leki úr kvikuganginum „Það munaði minnstu að þeir dræpu mig“ Sjá meira
Dómur Jóhannesar Tryggva fyrir nauðgun þyngdur Landsréttur þyngdi í dag dóm yfir Jóhannesi Tryggva Sveinbjörnssyni vegna nauðgunarbrots gegn konu á nuddstofu hans árið 2012. Jóhannes var dæmdur í átján mánaða fangelsi og til þess að greiða tvær milljónir króna. 6. október 2023 14:16
Nuddari ákærður fyrir nauðgun Héraðssaksóknari hefur ákært nuddara fyrir að hafi í starfi sínu nauðgað konu á heimili hennar. Honum er gefið að sök að hafa haft önnur kynferðismök en samræði við konuna án hennar samþykkis, með því að kyssa bak hennar, nudda hana milli rasskinna, nudda kynfæri hennar utan klæða og setja fingur inn í leggöng hennar, henni að óvörum, þar sem hún lá léttklædd á nuddbekk. 17. apríl 2023 08:00
Meðhöndlarinn sem braut á fjölda kvenna ætlar með málið til Evrópu Jóhannes Tryggvi Sveinbjörnsson, sem hlaut uppsafnað sjö ára fangelsisdóm fyrir kynferðisbrot gegn fimm konum, fær mál sitt ekki tekið upp hjá Endurupptökudómi. Hann hefur hrundið af stað fjáröflun í eigin þágu og hyggst fara með málið fyrir Mannréttindadómstól Evrópu. Þá segir hann heimildamynd um sögu sína vera í bígerð. 2. mars 2023 20:13