Víkingur fékk vægast sagt umdeilda vítaspyrnu í leik liðanna á Akranesi í 8. umferð Bestu deildar karla. Í Uppgjöri Vísis úr leiknum segir:
„Eftir um tíu mínútna leik í seinni hálfleik var vítaspyrna dæmd. Marko Vardic togaði þá Danijel Dejan Djuric niður í markteig Skagamanna, en Danijel var við það að skjóta boltanum í átt að marki af stuttu færi.
Danijel virtist fara nokkuð auðveldlega niður, en víst að vítið var dæmt þá varð Vardic að fara af velli, sem og hann gerði, þar sem hann reyndi ekki að leika boltanum í þessu dauðafæri Víkinga.“
Arnar Gunnlaugsson, þjálfari Víkinga, hafði þetta að segja um dóminn að leik loknum: „Þetta leit út frá hliðarlínunni eins og pjúra víti, en ég er búinn að sjá endursýninguna og þá er þetta soft. Ég get samt alveg skilið Ella [Erlend Eiríksson, dómara] að hafa dæmt þetta með hans sjónarhorn.
Ég er ekki tilbúinn að kaupa það að Danijel hafi verið að reyna að svindla, hann var bara að reyna að ná boltanum og gera eitthvað úr þessu. Þetta var svona frekar soft víti, ef ég á að segja alveg eins og er.“
Segja má að dómurinn hafi farið öfugt ofan í fólk á Akranesi, þar á meðal er Eggert Herbertsson, formaður Knattspyrnufélags ÍA. Deildi hann myndbandi frá X-aðgangi, áður Twitter, Bestu deildarinnar á sínum eigin X-aðgangi. Þar segir Eggert:
„Þetta er alveg ótrúleg dómgæsla. Það má koma við leikmenn en þarna er augljóslega ekkert brot, en þreföld refsing, víti og manni færri í þessu leik og svo leikbann í næsta leik. Þessi ákvörðun er með ólíkindum !!!“
Þetta er alveg ótrúleg dómgæsla. Það má koma við leikmenn en þarna er augljóslega ekkert brot, en þreföld refsing, víti og manni færri í þessu leik og svo leikbann í næsta leik. Þessi ákvörðun er með ólíkindum !!! https://t.co/s53uo03z1e
— Eggert Herbertsson (@eggert66) May 27, 2024
Viðbrögðin við færslu Eggerts létu ekki á sér standa. Má sjá nokkur þeirra hér að neðan.

Brynjólfur Þór Guðmundsson lét einnig í ljós óánægju sína með dómgæsluna í leiknum sem. Þórður Einarsson, Magnús Haukur Harðarson, Jóhann Skúli Jónsson og Arnar Már Guðjónsson voru sama sinnis.
Svekkjandi tap fyrir Erlendi og félögum í @bestadeildin . @Skagamenn gerðu þó vel manni færri. Einn af þessum leikjum sem ráðast ekki af frammistöðu leikmanna. Takk @footballiceland
— Brynjólfur Þór Guðmundsson (@BrynThor) May 25, 2024
Gjörsamlega glórulaust víti á Skaganum. Gjörsamlega glórulaust rautt spjald. En hefur engin áhrif á Erlend dómara sem drullar þarna upp á bak og niður á læri. Dómarateymi KSÍ stendur með sínum. #ÍAVÍK @bestadeildin #fotbolti
— Brynjólfur Þór Guðmundsson (@BrynThor) May 25, 2024
Að það skuli ekki vera hægt að áfrýja rauðum spjöldum hér á landi er algjörlega galið.
— Max Koala (@Maggihodd) May 27, 2024
Röng ákvörðun ÍA tapar leiknum og Vardic í banni í næsta leik.@footballiceland verður að opna á áfrýjanir þegar myndbandsupptökur er til staðar. https://t.co/7qvgoKpztT
Hvað finnst mér 😂 hmmmmm 🤔🤔🤔 Þetta er hætt að vera fyndið því miður. https://t.co/Zxz6M6zJvv
— Jói Skúli (@joiskuli10) May 27, 2024
Hér gerir góður dómari vissulega skissu! Rauða spjaldið er svo mér óskiljanlegt!
— Þórður Einarsson (@doddi_111) May 27, 2024
En það er aftur móti löngu komin tími á að taka á atferli leikmanns 19 í liði Víkinga. Frábær leikmaður sem einfaldlega notar allar snertingar til að svindla á andstæðingum sínum! https://t.co/Wx330HuQzj
Nei þið eruð ekki að átta ykkur á því hversu galinn dómur þetta var hjá Erlendi áðan. Þessi leikur öskraði 0-0
— Arnar Már Guðjónsson (@ArnarMarG) May 25, 2024
Títtnefndur Djuric hefur áður verið sakaður um að standa heldur illa í lappirnar. Heimir Guðjónsson, þjálfari FH, sagði fyrr í sumar að dómarar Bestu deildarinnar þyrftu að þekkja leikmenn betur.
Sjá einnig: Heimir ósáttur eftir leik: Má ekki anda og þá er búið að lyfta spjaldi
„Það er oft með dómara að þeir þekkja leikmenn ekki nægilega vel. Sigurður Bjartur [Hallsson, framherji FH] lætur sig ekki detta. Damir [Muminovic, miðvörður Breiðabliks] bombar hann niður og það á að vera víti,“ sagði Heimir eftir 2-0 tap FH gegn Breiðabliki í 1. umferð. Hann hélt svo áfram:
„Í fyrra, þegar við vorum í Evrópubaráttu, var Ívar Orri að dæma. Danijel Djuric lætur sig detta þegar Ástbjörn [Þórðarson] er í honum á gulu spjaldi. Niðurstaðan gult og rautt.“
Víkingur og Breiðablik mætast í toppslag Bestu deildar á Kópavogsvelli á fimmtudaginn kemur. Leikurinn verður að sjálfsögðu í beinni útsendingu Stöðvar 2 Sport.