Skoðun

Kjósum Baldur fyrir öryggi okkar allra

Ragnheiður Hergeirsdóttir skrifar

Baldur Þórhallsson leggur áherslu á að við sem þjóð þurfum efla viðbrögð okkar og viðnámsþrótt til að takast á við þær áskoranir sem íslensk náttúra og aðrar ógnir skapa.

Hann hefur bent á að styrkleikar okkar á tímum áfalla geti að einhverju leyti hafa falist í því að hugsa „þetta reddast“, en að heimurinn í dag kalli á að við sýnum fyrirhyggju í þessum efnum. Ég var bæjarstjóri í Árborg árið 2008 þegar sterkir jarðskjálftar riðu yfir byggðarlagið. Eignatjón varð mikið en sem betur fer varð ekki manntjón. Skjálftarnir höfðu mikil áhrif á íbúa svæðisins og samfélagið allt, fjárhagslega, tilfinningalega og félagslega. Atburðirnir urðu okkur öllum sem upplifðu sterk áminning um hve mikilvægur undirbúningur er til að lágmarka tjón og erfiðleika þeirra sem eru þolendur slíkra áfalla.

Þegar Covid brast á vorum við svo lánsöm að hér á landi voru til áætlanir um hvernig stjórnkerfin ættu að bregðast við faraldri og stjórnmálafólk bar gæfu til að fara eftir ráðgjöf vísindafólks um hvernig yrði best tekist á við faraldurinn. Í dag eru fyrirliggjandi vandaðar viðbragðsáætlanir fyrir ýmis áföll en eins og gosin á Reykjanesskaga hafa sýnt okkur þá geta afleiðingar slíkra hamfara bæði verið ófyrirsjáanlegar og langvarandi og áhrifin á líf þeirra sem í hlut eiga eru mikil.

Íslenskar og alþjóðlegar rannsóknir á sviði áfallastjórnunar staðfesta svo ekki verður um villst að fyrirhyggja borgar sig. Það er því afar mikilvægt að eiga kost á að kjósa forseta sem hefur undanfarinn aldarfjórðung einbeitt sér að því að rannsaka og kenna hvernig smáríki getur brugðist við og eflt viðbrögð sín við vá. Baldur hefur lagt sérstaka áherslu á að við þurfum að efla viðbragðsaðila, jafnt opinbera aðila sem björgunarsveitir og Rauða Kross Íslands sem vinna ómetanlegt sjálfboðið starf.

Forseti hefur áhrifavald og það hvaða mál hann setur á oddinn skiptir máli. Baldur hefur talað mjög skýrt um öryggismál þjóðarinnar og enginn þarf að efast um að hann mun nýta áhrifamátt forsetaembættisins á þessu sviði í þágu okkar allra. Ég hvet alla til að kynna sér framboð Baldurs og þá mikilvægu þekkingu sem hann býr yfir á sviði öryggismála. Kjósum Baldur til embættis forseta Íslands.

Höfundur er félagsráðgjafi og hefur reynslu af stjórnun opinberra stofnana á tímum áfalla.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×