Skoðun

Ísrael verður að hætta að drepa sak­lausa borgara á Gaza

Guðmundur Ingi Guðbrandsson skrifar

Þann 7. maí birti ég grein hér á Vísi þar sem ég sagði að innrás Ísraela á Rafah stríddi gegn allri mannúð. Síðan þá hefur Ísrael staðið fyrir landhernaði í hlutum borgarinnar og haldið áfram grimmilegum loftárásum. Framferði Ísraela heldur því áfram að leiða af sér hörmungar fyrir almenning á Gaza. Á sunnudagskvöld kviknaði í tjaldbúðum í borginni vegna sprengjuárásar Ísraels en bruninn dró 45 manns til dauða. Fólkið, sem hafði leitað skjóls í tjaldbúðunum, mætti þess í stað dauða sínum. Þetta kallar Benjamin Netanyahu forsætisráðherra Ísraels „slys“. Og, nú eru skriðdrekarnir komnir inn í miðja Rafah-borg. Ég fordæmi þetta skeytingarleysi fyrir mannslífum og vanvirðingu fyrir alþjóðalögum með öllu.

Á myndum og myndböndum sem hafa farið í dreifingu á samfélagsmiðlum sést hvaða óviðjafnanlegi hryllingur á sér nú stað í Rafah. Auk mannfalls sem telur tugi þúsunda eru hundruð þúsunda á vergangi og lifa í stöðugum ótta við árásir úr lofti eða af landi.

Stjórnvöld ýmissa landa hafa aukið þrýsting sinn á Ísrael um að binda endi á stríðið. Sterkt dæmi um það er að Írland, Spánn og Noregur hafa nú viðurkennt sjálfstæði Palestínu, en Ísland og Svíþjóð voru einu löndin í Vestur-Evrópu sem höfðu gert það áður, Ísland árið 2011. Ákvörðun þessara landa er því söguleg og vonandi munu fleiri ríki fylgja í kjölfarið.

Þann 10. maí síðastliðinn greiddi Ísland atkvæði með aukinni þátttöku Palestínu á vettvangi Sameinuðu þjóðanna. Í atkvæðaskýringu Íslands sagði meðal annars að Palestínu ætti að „vera fagnað sem 194. aðildarríki Sameinuðu þjóðanna“. Af því tilefni sagði utanríkisráðherra á Twitter/X að til séu dæmi um deilumál sem hafi virst algjörlega óyfirstíganleg en hafi verið leyst, og að það vilji Ísland að verði gert byggt á tveggja ríkja lausninni. Ísland hefur einnig aukið framlög til mannúðaraðstoðar á Gaza í gegnum Palestínu-flóttamannahjálp Sameinuðu þjóðanna (UNWRA).

Alþjóðastofnanir hafa einnig tekið að skerast í leikinn. Alþjóðadómstóllinn í Haag úrskurðaði í síðustu viku að Ísrael ætti að láta af öllum hernaðaraðgerðum á Rafah. Aðalsaksóknari alþjóðasakamáladómstólsins hefur einnig gefið út beiðni um handtökuskipan bæði á hendur Netanyahu, fleiri ísraelskum ráðamönnum ásamt leiðtogum Hamas. Ísraelsk stjórnvöld hafa því einangrast á alþjóðavettvangi en Bandaríkin halda enn hlífiskildi yfir þeim. Sem dæmi viðurkenna Bandaríkin ekki lögsögu alþjóðasakamáladómstólsins og hafa gefið út að þau muni ekki virða ákvörðun hans. Þá er þekkt að Bandaríkin beita ítrekað neitunarvaldi sínu í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna þegar setja á aukinn þrýsting á Ísrael. Allt gerist þetta þrátt fyrir að Alþjóðadómstóllinn hafi í vetur komist að þeirri niðurstöðu að mögulega væri um að ræða hópmorð á Gaza og málarekstur stendur enn yfir í því máli, sem Suður-Afríka höfðaði gegn Ísrael.

Blóðbaðinu verður að linna

Íslensk stjórnvöld hafa á alþjóðavettvangi kallað eftir því að Ísrael og Hamas samþykki langvarandi vopnahlé og vinni að tveggja ríkja lausn. Það má ekki dragast. Ástandið á svæðinu er skelfilegt. Algerlega ómannúðlegt. Ísrael verður að hætta strax að tefja flutning hjálpargagna til Gaza. Ísrael verður að hætta hernaðinum. Blóðbaðinu verður að linna.

Höfundur er formaður VG og félags- og vinnumarkaðsráðherra.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×