Skoðun

Hver er besti skóla­stjórinn?

Aðalheiður Björk Olgudóttir skrifar

Nú í vikunni þegar ég kom inn í einn af yngri bekkjum skólans sem ég starfa í til að sækja nemanda voru krakkarnir í bekknum niðursokknir í myndband sem rúllaði á tjaldinu. Við blasti Ásdís Rán sem kynnti sig og framboð sitt til forseta Íslands og nemendur horfðu áhugasamir á. Þegar kynningunni lauk heyrðist sagt í bekknum: -Vá er hún í alvörunni 36 ára? hún lítur sko út fyrir að vera tuttuguogfjögurra!

Á sumum borðum hafði þegar verið merkt við ákveðið nafn á blaði þótt kynningum væri langt í frá lokið en flestir tóku hlutverkið alvarlega og fylgdust vandlega með og biðu rólegir. Minn skjólstæðingur kom með semingi með mér. Hann hélt á blaði með nöfnum forsetaframbjóðendanna svo að ég spurði hann hvort þau væru að fara að kjósa?

-Já, segir hann við erum að fara að kjósa skólastjóra. Ég hvái og hann segir að þau séu að horfa á alla kynna sig og svo eigi að kjósa skólastjóra, það sé samt í plati en þau séu að æfa sig að kjósa.

-En gaman segi ég, viltu kannski klára að kjósa og koma svo á eftir til mín í tíma? Já hann hélt nú það, svo ég segi við hann að skilnaði -Þið eruð reyndar að kjósa forseta Íslands en ekki skólastjóra. Hann horfði efins á mig. -Það getur ekki verið, það er svo margt fólk, það er ekki gamalt og svo er fullt af konum. Vissulega góð rök í sumum löndum en ekki hér. Ekki lengur.

Lýðræðið virkar þegar alls konar fólk af öllum kynjum með alls konar bakgrunn, á ýmsum aldri getur boðið sig fram til embættis forseta Íslands. Þetta árið er boðið upp á hlaðborð af frambærilegum kjósendum og mörgum finnst valið erfitt. Partur af lýðræðinu er að kynna sér framboðið, hlusta og ígrunda og síðan að lokum nýta sér dýrmætan kosningaréttinn og segja með því sína skoðun. Hver er hæfastur í starfið? Hver kemur best fyrir? Hver talar alltaf af virðingu um annað fólk? Hver eru fyrri störf? Hver mun gera okkur stoltust? Hver verður besti skólastjórinn?

Við sem eldri erum ættum að taka börnin okkur til fyrirmyndar, hlusta, ígrunda, tala fallega og af virðingu um aðra, hlusta á hjartað og komast að niðurstöðu – fyrir okkur sjálf og kjósa svo samkvæmt því.

Kæra unga fólk á öllum aldri: Nýtið kosningaréttinn þann 1. júní! Hann er ekki sjálfgefinn og hann skiptir máli! Það er fátt sem gleður mitt gamla kennarahjarta meira en að rekast á gamla nemendur á kjördag, uppábúna og hátíðlega að nýta kosningaréttinn sinn. Þá veit ég að eitthvað skilaði sér í gegn. Gleðilegar kosningar!

Höfundur er stuðningskona Katrínar Jakobsdóttur

Höfundur: Aðalheiður Björk Olgudóttir




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×