Svo virðist sem Vinstri græn setji ýmsa fyrirvara við málið en í gær sagði Jódís Skúladóttir, þingmaður Vinstri grænna, til dæmis að lögreglan ráði varla við þær valdheimildir sem hún hafi núna og spurði í ljósi þess hvort lögreglan hafi við auknar valdheimildir að gera. Í hádegisfréttum Bylgjunnar sagði hún þá jafnframt að fara þyrfti „ákaflega varlega í auknar heimildir til lögreglu.“
Sigmar Guðmundsson, þingmaður Viðreisnar sagði í ræðu sinni á Alþingi í dag að það væri augljóst að VG tæki sér stöðu gegn frumvarpi dómsmálaráðherra um lögreglulögin. Hann sagði að það væri ekki sjálfbært fyrir þjóðina að hafa ríkisstjórn sem gengi út á gagnkvæmt neitunarvald flokkanna og að það megi ekki alltaf enda þannig að stjórnarflokkarnir stöðvi mál hvers annars óháð því hvort þingmeirihluti væri fyrir málum eða ekki.
Sigmar sagði að líklega væri meirihluti fyrir breytingunum á lögreglulögum í þinginu og að Viðreisn, flokkur Sigmars, vildi leggja sitt af mörkum til að ná því máli í gegn.
„Það er ekki ólíklegt að það sé meirihluti fyrir því hér í þinginu að fjölga hér lögreglumönnum, efla löggæslu og grípa til aðgerða gegn skipulagðri brotastarfsemi og hryðjuverkaógn þótt einn stjórnarflokkanna sé mögulega á móti því. Viðreisn vill leggja sitt af mörkum til að ná því máli í gegn bæði til að efla löggæslu í landinu og efla öryggi borgarinnar en ekki síður til að tryggja eftirlit með þeim valdheimildum sem beitt er.“
Sigmar benti á að þingmeirihluti væri fyrir breytingum í orkumálum og að Viðreisn sé til í samtal við alla flokka, óháð víglínu stjórnar- og stjórnarandstöðu um þau mál sem flokkurinn telji brýnt að ljúka áður en þingi sé slitið.
„Sú pattstaða sem hér er uppi vegna ósættis innan stjórnarliðsins vinnur gegn hagsmunum almennings, ein leið út úr því er ofur einfaldlega að láta reyna á hver vilji þingsins er, óháð því hvað einstaka stjórnarflokkum kann að finnast.“