Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Icelandair en félagið birti flutningatölur í kauphöll í dag. Þar kemur fram að heildarfjöldi farþega Icelandair hafi verið 396 þúsund í maí sem er átta prósentum fleiri en í maí síðasta árs. 28 prósent farþega voru á leið til Íslands, 16 prósent frá landinu, 50 prósent tengifarþegar og sex prósent innanlandsfarþegar. Sætanýting var 80 prósent og stundvísi var 85,1 prósent.
„Við höfum brugðist við þeirri breytingu sem orðið hefur á eftirspurn eftir ferðum til Íslands með því að nýta sveigjanleikann í leiðakerfinu okkar og auka áhersluna á tengimarkaðinn þar sem við bjóðum upp á 791 tengimöguleika yfir Atlantshafið,“ er haft eftir Boga Nils Bogasyni, forstjóra Icelandair, í tilkynningunni.
Ferðaþjónusta er ein mikilvægasta atvinnugreinin á Íslandi og til þess að örva áhuga á ferðum til Íslands viljum við hvetja íslensk stjórnvöld til þess að leggja aukna áherslu á markaðssetningu Íslands sem áfangastaðar, líkt og þekkist í þeim löndum sem við keppum við.“
Félagið hefur flug til þriggja nýrra sumaráfangastaða í mánuðinum, Færeyja, Pittsburgh og Halifax auk sem tíðni ferða til vinsælla áfangastaða hefur aukist.
„Það er mjög ánægjulegt að sjá áframhaldandi góða stundvísi. Hún skýrist af skýrum áherslum félagsins og frábærri vinnu Icelandair teymisins. Þessi góða stundvísi hefur verið mikilvægur þáttur í aukinni ánægju viðskiptavina í öllum helstu ánægjumælingum,“ er haft eftir Boga.